Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Úr fuglabók Benedikts Gröndal: Helsingi, snjótittlingar, rjúpa. © Benedikt Gröndal

Rjúpan og viðkoma fálkans

12. mars 2003

Rjúpa
Rjúpa í sumarbúningi.
Ljósm. Erling Ólafsson.

Rjúpan er aðalfæða fálkans og á þeim tíma árs þegar hann er að undirbúa varp og á meðan á varpi og álegu stendur, þ.e. frá síðari hluta mars og fram í lok maí, étur hann fátt annað en rjúpu. Íslenski rjúpnastofninn er mjög breytilegur að stærð og munur á rjúpnafjölda í hámarks- og lágmarksári getur verið 5-10-faldur. Í erindinu verður fjallað um hvaða áhrif breytingar á fæðuframboði hafa á varpafkomu fálka, þ.e. þætti eins og hversu stór hluti óðalsbundinna fálka tekur þátt í varpi, hvenær vors þeir verpa, fjölda eggja í hreiðri og hversu margir ungar komast upp.

Fyrirlesturinn byggir á rannsóknum á fálka og rjúpu á Norðausturlandi 1981-2002.

Fálkaungar Fálkasetur
Fálkaungar í hreiðri. Ljósm. Ólafur Hrafn Nielsen. Fálkaklettur rauðlitaður af fuglaskóf sem sýnir búsetu fálkans í árhundruð eða þúsund. Hvíti bletturinn er drit í náttbóli uppi í bjarginu. Ljósm. Ólafur Karl Nielsen.





Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica