Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Krabbaflær. Teikning: Jón Bogason

Landnám smádýra á Surtsey

23. apríl 2003

Eldgos hófst í hafi við Vestmannaeyjar fyrir 40 árum. Gosið stóð í þrjú ár og tæpum átta mánuðum betur. Í gosinu myndaðist Surtsey, útvörður Íslands í suðri. Eyjan hefur síðan verið vettvangur margþættra rannsókna á sviði jarðfræði og líffræði.

Blómsturflugan Zaphne frontata
Blómsturflugan Zaphne frontata á blómi fjöruarfa í Surtsey. Ljósm. Erling Ólafsson.

Í þessu erindi verður augum beint að því hvernig aðstæður hafa breyst frá lífvana gjósku og hraunum til þess ástands sem nú ríkir þegar 40 ár eru liðin frá því að eyjan reis úr sæ. Áhersla er lögð á það að sýna hvernig skilyrði hafa skapast fyrir varanlegt landnám smádýra og myndun samfélaga þeirra í tengslum við vaxandi grósku og fuglalíf.

Alls er kunnugt um 300 tegundir landsmádýra sem borist hafa til Surtseyjar, en aðeins hluti þeirra hafa mætt lífsskilyrðum sem þær hafa getað fært sér í nyt. Um þetta verður nánar fjallað í erindinu.

Nakið hraun Surtseyjar 1971 Hraun Surtseyjar 2002
Nakið hraun Surtseyjar 1971. Ljósm. Erling Ólafsson. Sama hraun 2002, með ríkulegum gróðri sem máfavarp hefur leitt af sér. Ljósm. Erling Ólafsson.

  • Eyjarani fundinn í Surtsey og Ingólfshöfða



MEIRA UM SURTSEY Á VEF NÍ


Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica