Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Teiknimyndasamkeppni, 16. janúar 2010. © AThM

Vorblóm (Draba) á Íslandi

16. apríl 2008

Gróa Valgerður IngimundardóttirGróa Valgerður Ingimundardóttir, líffræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands flytur fyrirlestur sem hún nefnir "Vorblóm (Draba) á Íslandi".

Ættkvísl vorblóma (Draba L.) er afar snúin frá flokkunarfræðilegu sjónarhorni. Hér á landi hafa helst Draba incana L., D. norvegica Gunn., D. nivalis Liljebl., D. alpina L., D. fladnizensis Wulf., D. daurica DC., D. lactea og D. cinerea Adams verið taldar til flóru landsins. Tegundalistinn er þó all breytilegur á milli heimilda og mun að líkindum halda því áfram í nokkurn tíma þar sem nýjar rannsóknir með nýrri tækni og aukinni vinnu, geta vart annað en haldið áfram að greiða úr þeim flækjum sem finnast meðal þessa hóps.

Héluvorblóm
Héluvorblóm (Draba nivalis) Ljósm. Hörður Kristinsson.

Teknar hafa verið saman upplýsingar um og lýsingar á þeim tegundum vorblóma sem sannað þykir að finnist í flóru Íslands miðað við fyrirliggjandi gögn. Við verkið var gagnagrunnur og háplöntusafn Náttúrufræðistofnunar Íslands auk fjölda heimilda notaður. Til viðbótar hafa farið fram frumathuganir á litningatölum íslenskar vorblómategunda en þær geta reynst verulega gagnlegar við að skera úr um rétta tegundagreiningu þar sem útlitseinkenni til aðgreiningar eru sjaldnast skörp.

Verkefnið er unnið með Herði Kristinssyni, fléttufræðingi hjá N.Í. og Kesara Anamthawat-Jónssson, prófessor í plöntuerfðafræði hjá Háskóla Íslands.

Staðreyndasíður um vorblóm í plöntuvefsjá Náttúrufræðistofnunar:

  • Héluvorblóm (Draba nivalis)
  • Grávorblóm (Draba incana)
  • Hagavorblóm (Draba norvegica)


Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2011-2012
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Tilkynningar og fyrirspurnir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica