Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Tímaritin Bliki og Náttúrufræðingurinn. © Anette Th. Meier

Fýllinn í Rangárvallasýslu: útbreiðsla og saga

29. október 2008

Borgþór Magnússon

Borgþór Magnússon, plöntuvistfræðingur og forstöðumaður Vistfræðideildar á Náttúrufræðistofnun, flytur fyrsta erindi Hrafnaþings á þessum vetri. Erindi Borgþórs ber heitið „Fýllinn í Rangárvallasýslu: útbreiðsla og saga“.

Fýll á sér merkilega sögu bæði hér á landi og í norðanverðu Atlantshafi þar sem hann hefur numið ný lönd og stórfjölgað undanfarnar aldir. Að uppruna er fýllinn hánorrænn fugl en heimkynni hans og varpstöðvar voru bundin við svæði langt norðan Íslands. Á fyrri hluta 17. aldar er aðeins vitað til að fýll hafi orpið í Kolbeinsey og Grímsey hér við land. Um miðja 18. öld tók hann að dreifast suður á bóginn og hóf að verpa í Vestmannaeyjum og Eldey.

Fýlsvörp sem kortlög voru í Rangárvallasýslu sumarið 1980
Fýlsvörp sem kortlög voru í Rangárvallasýslu sumarið 1980. Ártöl sýna hvenær fýll tók fyrst að verpa á viðkomandi svæði að því best er vitað. Kort: Anette Th. Meier.

Um 1820 eru fyrstu heimildir varp fýls uppi á landi er hann tók heima í hömrum við Höfðabrekku í Mýrdal. Á næstu áratugum breiddist varpið út um Hjörleifshöfða og Víkurhamra. Um 1860 hafði fýllinn náð vestur til Eyjafjalla en þar var fyrsta varpið í Drangshlíðarfjalli. Í dag er fýll mjög algengur varpfugl í björgum við sjó allt í kringum landið og víða hefur hann einnig sótt inn til landsins.

Sumarið 1980 vann höfundur að rannsóknum fyrir Náttúrufræðistofnun Íslands á útbreiðslu og stofnstærð fýls í Rangárvallasýslu. Farið var um sýsluna frá Árgilsstaðafjalli í Hvolhreppi austur að Jökulsá á Sólheimasandi. Vörp voru kortlögð, fuglar taldir og upplýsinga aflað hjá heimafólki um aldur varpanna og nytjar af fýlnum. Vorið 2008 voru nokkur vörp heimsótt að nýju og fuglar taldir til að kanna hvort miklar breytingar hefðu orðið á vörpunum. Í erindinu verður greint frá niðurstöðum rannsóknanna.

Drangshlíðarfjall undir Eyjafjöllum Fýlar í varpi í Flókastaðagili í Fljótshlíð
Drangshlíðarfjall undir Eyjafjöllum þar sem fýll tók að verpa um 1860 og var það fyrsti varpstaður fuglsins í Rangárvallasýslu. Ljósm. Erling Ólafsson, 2008. Fýlar í varpi í Flókastaðagili í Fljótshlíð, þar varð fyrst vart við varp árið 1977. Ljósm. Borgþór Magnússon 2008.





Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica