Hrafnaþing 2010-2011
Hrafnaþing er heiti á fræðsluerindum Náttúrufræðistofnunar sem eru á dagskrá yfir vetrartímann og er að jafnaði annan hvern miðvikudag. Hrafnaþing hefur verið haldið allt frá árinu 2003. Á Hrafnaþingi kynna stafsmenn stofnunarinnar rannsóknir sínar og gestafyrirlesurum er boðið að flytja erindi. Hrafnaþing er vettvangur fyrir umræður um náttúrufræði.
Fræðsluerindi á Hrafnaþingi eru opin öllum!
Á vormisseri 2011 fór Hrafnaþing fram í nýjum húsakynnum Náttúrufræðistofnunar í Urriðaholti á miðvikudögum frá kl. 15:15-16:00. Haldin voru 9 erindi og fjölluðu nokkur þeirra um náttúrufar Urriðaholts.
| Dagsetning | Fyrirlesari | Heiti erindis |
|---|---|---|
| 26. jan. | Sigmundur Einarsson | Búrfellshraun, hraunið við Urriðaholt |
| 9. feb. | Starri Heiðmarsson | Íslenskar fjörufléttur af svertuætt |
| 23. feb. | Rannveig Thoroddsen og Guðmundur Guðjónsson | Gróður við Urriðavatn |
| 9. mars | Borgþór Magnússon | Surtsey og gamlar úteyjar Vestmannaeyja |
| 23. mars | Kristinn P. Magnússon | Sameindaerfðafræði til að meta líffræðilega fjölbreytni |
| 6. apríl | Martha Raynolds | Searching for the effects of climate change on northern vegetation |
| 20. apríl | Ólafur Karl Nielsen | Heilbrigði rjúpunnar |
| 4. maí | Kristinn Haukur Skarphéðinsson | Saga geirfuglsins |
| 18. maí | Ragnheiður Traustadóttir | Fornleifarannsókn á Urriðakoti - gönguferð á eftir |
