Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Pöddur skoðaðar í víðsjá á Vísindavöku 2009. © Anette Th. Meier

HRAFNAÞING Á HLEMMI:

Fræðslufundir á vorönn 2003

Í ársbyrjun 2003 fékk Náttúrufræðistofnun inni í sal Möguleikhússins á Hlemmi fyrir fræðsluerindi sín, Hrafnaþing. Með þessu var hægt að bjóða félögum af öðrum stofnunum og áhugasömum almenningi að hlýða á erindin og fræðast um rannsóknir á Náttúrufræðistofnun. Áður hafði starfsmannafélag stofnunarinnar um árabil staðið fyrir hádegiserindum innanhúss, sem ekki var hægt að bjóða gestum að hlýða á vegna aðstöðuleysis. Í samvinnu starfsmannafélagsins og stofnunarinnar var bætt úr þessu og Hrafnaþing komið á.

Á vorönn 2003 voru flutt 9 erindi um rannsóknir í líffræði og jarðfræði á Hrafnaþingi og voru þau mjög vel sótt. Hér má sjá hvaða erindi voru þá á dagskrá og tengla á frekari kynningu á efni þeirra og fyrirlesurum.


Umsjónarmaður Hrafnaþings vorið 2003 var Borgþór Magnússon

Dagskrá á vorönn 2003

15. janúar Sigurður H. Magnússon, plöntuvistfræðingur: Þungmálmar í mosa, mælikvarði á loftmengun
29. janúar Eyþór Einarsson, grasafæðingur: Gróðurframvinda í skerjum í Breiðamerkurjökli
12. febrúar Kristján Jónasson, jarðfræðingur: Kísilríkt berg á Íslandi
26. febrúar Ólafur Einarsson, fuglafræðingur: Náttúruverndaráætlun - tillögur N.Í.
12. mars Ólafur Karl Nielsen, vistfræðingur: Rjúpan og viðkoma fálkans
26. mars Sveinn P. Jakobsson, jarðfræðingur: Hryggir og stapar í vestra gosbeltinu
9. apríl Guðmundur A. Guðmundsson, fuglafræðingur Eru milljón heiðlóur á Íslandi?
23. apríl Erling Ólafsson, skordýrafræðingur: Landnám smádýra á Surtsey
7. maí Helgi Torfason, jarðfræðingur: Jarðhitakort af Íslandi



Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Vor 2003

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica