Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Krabbaflær. Teikning: Jón Bogason

Fræðimenn og fólkið

Vísindavaka RANNÍSVísindavaka 2006

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur tekið þátt í Vísindavöku sem Rannsóknamiðstöð Íslands (RANNÍS) hefur staðið fyrir undanfarin ár. Starfsmenn stofnunarinnar hafa m.a. kynnt rannsóknir á geitungum, fuglamerkingar, frjókornamælingar og pöddur.


Vísindavaka 2011 - goggurFræðsla fyrir börn

Undanfarin ár hefur verið unnið að fræðsluefni fyrir börn sem notað hefur verið á Vísindavöku Rannís. Hér hefur verið safnað saman því fræðsluefni sem til er rafrænt og má m.a. annars finna myndir af sveppum, pöddum, frjókornum og fuglum til að lita. Gogg með upplýsingum um sveppi er hægt að prenta út og brjóta saman og hægt er að prenta út og lita óróa af pöddum.

Vísindamaður að lániErling að láni útí bæ

Vísindamaður að láni er samvinnuverkefni RANNÍS og rannsóknastofnana. Í því felst að stofnanirnar lána sérfræðinga sína til grunnskóla til að kynna nemendum þeirra viðfangsefni sín. Sérfræðingarnir heimsækja skólana eftir pöntunum frá kennurum. Skólaárið 2006-07 býður Náttúrufræðistofnun Íslands upp á sex fræðsluefni af þessu tagi.


Þemadagur um Surtsey í Háskóli unga fólksins 2007Háskóli unga fólksins, sumarið 2007

Þegar grunnskólum lýkur á vorin býður Háskóli Íslands nemum á aldrinum 12-16 ára upp á fræðslu í sumarskóla sem nefnist Háskóli unga fólksins. Skólinn er fyrst og fremst hugsaður sem leið til að kynna unglingum ólíkar fræðigreinar og opna þeim dyr háskólans í kynningarskini. Háskóli unga fólksins var vikuna 11.-15. júní og að þessu sinni tóku þátt tveir sérfræðingar á Náttúrufræðistofnun Íslands og voru með þemadag um Surtsey.


Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Kynning og fræðsla

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica