Beint í leiðarkerfi vefsins.
Það var gestkvæmt á sýningarbás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku Rannís sem haldin var 23. september síðastliðinn. Yfirskrift sýningarinnar var Sveppir alls staðar. Þar voru veggspjöld með upplýsingum um sveppi, eiginleika þeirra og lífsstíl auk þess sem fræðast mátti um matsveppi. Hægt var að skoða ýmsa sveppi á staðnum, stóra sem smáa.
Lesa meira
Mörg hundruð manns sóttu bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku í lok september. Yfirskrift sýningarinnar var Á vængjum fögrum - Fiðrildi og var þar kynning á fiðrildum á Íslandi, bæði íslenskum fiðrildum og fiðrildum sem eru slæðingar eða flækingar - berast til landsins með vindum eða varningi. Kynnt var verkefni um vöktun fiðrilda sem staðið hefur yfir hjá Náttúrufræðistofnun frá því á árinu 1995. Hægt var að skoða ýmis fiðrildi á staðnum, stór sem smá, innlend jafnt sem erlend. Ýmislegt var í boði fyrir börnin og skordýrafræðingur stofnunarinnar, Erling Ólafsson, var á staðnum til að svara spurningum gesta.
Lesa meira
Annríkt var á bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku Rannís sem haldin var 25. september s.l. Þar kynnti stofnunin nýjan vef um pöddur. Sýndir voru lifandi spánarsniglar og pardussniglar, hægt var að skoða vorflugur, holugeitunga, mykjuflugur, birkivefara, járnsmið og trjákepp í víðsjá og börnin fengu með sér myndir til að lita og búa til óróa. Týrusporðdrekinn og tvö afkvæmi hans vöktu einnig mikla athygli. Myndasýning af pöddum var á skjá og veggir bássins voru prýddir pöddumyndum.
Lesa meiraMörg hundruð manns heimsóttu bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku í september. Þar kynnti stofnunin starfsemi sína með fræðslu um fjókorn. Í sýningunni voru veggspjöld með upplýsingum um hvað frjókorn eru, hvaða frjókorn valda ofnæmi og af hverju, hvers vegna frjókornamælingar eru mikilvægar og ýmislegt fleira. Boðið var upp á að skoða frjókorn í smásjá og frjógildra sem fangar frjókorn frá vori fram á haust í Reykjavík var til sýnis.
Lesa meira
Náttúrufræðistofnun Íslands tekur þátt í Vísindavöku á morgun á milli kl. 17 og 22. Rannís stendur fyrir vökunni í fjórða sinn en hún verður haldin í Listasafni Reykjavíkur. Dagurinn er tileinkaður evrópskum vísindamönnum og haldinn hátíðlegur í helstu borgum Evrópu.
Mörg hundruð manns heimsóttu bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku í september. Þar kynnti stofnunin starfsemi sína, fuglarannsóknir og rafeindamerkingar. Í básnum voru veggspjöld með upplýsingum um ferðir fugla, ásamt uppstoppuðum fuglum með áföstum rafeindamerkingum og ljósmyndir á veggjum og skjá.
Lesa meira
Náttúrufræðistofnun Íslands tekur þátt í Vísindavöku í dag á milli kl. 17 og 21. Rannís stendur fyrir vökunni í þriðja sinn en hún verður haldin í Listasafni Reykjavíkur. Dagurinn er tileinkaður evrópskum vísindamönnum og haldinn hátíðlegur í helstu borgum Evrópu.
Lesa meiraMörg hundruð manns heimsóttu bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku í september. Þar kynnti stofnunin starfsemi sína og geitungarannsóknir og vöktu flugurnar og búin sem þar voru til sýnis mikla athygli gesta. Í básnum voru einnig veggspjöld þar sem landnám og lífsferill geitunganna var rakinn sem og ljósmyndir á veggjum og skjá.