Miðlun og þjónusta
Náttúrufræðistofnun Íslands ber að annast fræðslu og skipulega miðlun upplýsinga og fræðslu
um náttúru landsins. Þessi hlutverki gegnir stofnunin m.a. með útgáfustarfsemi, heimasíðu, vefsjám, rekstri bóka- og sýningarsafns og virkum tengslum við skóla og almenning.
Krafa um greiðan aðgang að upplýsingum eykst ár frá ári. Samfélagið þarfnast áreiðanlegra gagna um náttúruna til að byggja á ákvarðanir um skynsamlega landnotkun, sjálfbæra nýtingu og vernd náttúrunnar. Notendur náttúrufarsgagna spanna ráðuneyti, aðrar opinberar stofnanir, sveitarfélög, einkafyrirtæki, námsfólk og almenning. Náttúrufarsgögn sem Náttúrufræðistofnun útbýr og miðlar eru meðal annars útbreiðslukort dýra og plantna, gögn um verndarstöðu tegunda, góðurkort, vistgerðakort, jarðhita- og jarðfræðikort, gögn um áhættu af völdum skriðufalla og gögn um ástand veiðistofna.
Úr sýningarsafni Náttúrufræðistofnunar Íslands


