Randakönguló

- Tetragnatha extensa, vika 6, 7. - 13. febrúar 2010

Randakönguló - Tetragnatha extensa

Randakönguló. Ljósm. Erling Ólafsson.

Randakönguló er tiltölulega staðbundin á landinu en þar sem skilyrði eru kjörin er mikið af henni, t.d. í gulvíðikjarri á bökkum Mývatns. Hún er auðþekkt frá öðrum íslenskum köngulóm af löngum mjóum bol og löngum fótum sem hún teygir langt fram og aftur fyrir bolinn þar sem hún situr t.d. á mjóum greinum eða stráum eða í vef sínum.

Frekari upplýsingar | Pöddur

Tegundir annarra vikna



 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: