Stráygla
- Apamea remissa, vika 30, 25. - 31. júlí 2010
![]() |
|
Stráygla. Ljósm. Erling Ólafsson. |
Stráygla er nýlegur landnemi hér á landi sem uppgötvaðist fyrst á Kvískerjum í Öræfum 2001. Næst fannst hún undir Eyjafjöllum 2005 og í kjölfarið á fleiri stöðum á sunnan- og suðvestanverðu landinu. Samtímis hefur tegundinni fjölgað verulega og er hún farin að sjást í mjög auknum mæli. Henni ætlar því að vegna vel hér í nýjum heimkynnum. Hennar verður m.a. vart í þéttbýli og á hún það til að laðast að ljósi inn um opna glugga á kvöldin. Hún lætur lítið fyrir sér fara að degi til.

