Gulsprekla
- Toxoneura trimacula, vika 35, 29. ágúst - 4. september 2010
![]() |
|
Gulsprekla. Ljósm. Erling Ólafsson. |
Gulsprekla er frekar sjaldgæf hér á landi, auk þess lítt áberandi vegna þess hve felugjörn hún er í gróðurþykkni. Hún er auðþekkt, algul á lit en með þrjá áberandi dökka flekki á vængjum (sbr. fræðiheitið trimacula). Þegar fylgst er með henni má sjá að hún er stöðugt að slá út vængjunum og eru þar væntanlega í gangi skilaboð til hins kynsins. Gulsprekla líkist blaðflugu (Lyciella rorida) en þekkist auðveldlega frá henni á flekkóttum vængjunum.


