Bláklukka
- Campanula rotundifolia, vikur 30 og 31, 19. júlí – 1. ágúst 2009
![]() |
|
Bláklukka. Ljósm. Erling Ólafsson. |
Bláklukka er meðalhá jurt sem blómstrar bláum klukkum í júlí-ágúst. Blómin eru oftast eitt til tvö á stöngli en stundum fleiri. Bláklukka vex einkum í graslendi og móum en einnig í skóglendi og klettum. Hún er algeng á austurlandi en sjaldgæf annars staðar. Líklegast er að þessa sérstöku útbreiðslu hennar megi skýra á þann hátt að hún hafi snemma komið til Austurlands og náð að leggja það alveg undir sig.
Frekari upplýsingar | Plöntuvefsjá
Næsta vika: Klettafrú


