Acta Botanica Islandica
Acta Botanica Islandica er tímarit sem helgað er íslenskri grasafræði og birtir vísindalegar greinar sem oftast eru á ensku, þó kemur fyrir að birtar eru greinar á þýsku eða frönsku. Acta var gefið út af Náttúrugripasafninu á Akureyri á vegum Menningarsjóðs í upphafi en fyrsta heftið kom út árið 1972. Náttúrugripasafnið á Akureyri tók alfarið yfir útgáfuna 1976 þegar fjórða heftið kom út og sá um útgáfu tímaritsins þar til Náttúrufræðistofnun Norðurlands tók við hlutverki Náttúrugripasafnins með 10. hefti 1990.
Frá 1995 (12. hefti) hefur útgáfan síðan verið í höndum Náttúrufræðistofnunar Íslands sem tók árið 1994 yfir Náttúrufræðistofnun Norðurlands. Nú hafa komið út 15 hefti af Acta og var Hörður Kristinsson ritstjóri frá upphafi til og með 14. hefti. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir er ritstjóri nú.
Að meðaltali hefur komið út eitt hefti annað hvert ár en síðustu ár hefur útgáfan verið stopulli. Síðasta hefti, nr. 15 kom út árið 2011 og heftið þar á undan, nr. 14, kom út árið 2004.
Ritstjóri: Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Aðstoðarritstjóri: Starri Heiðmarsson
Skrá og PDF skjöl greina sem hafa birst í Acta Botanica Islandica:
2000–2011 | 1990–1995 | 1981–1987 | 1972–1979

