Fjölrit 46
Undafíflar á ný
eftir Bergþór Jóhannsson, mosafræðing.
Túlkun grasafræðinga á þessari flóknu ættkvísl undafífla (Hieracium) hafði löngum verið mjög umdeild og skilgreiningar tegunda þóttu flóknar. Ingimar Óskarsson, grasafræðingur, vann árum saman að því að ná tökum á undafíflum landsins. Hann lýsti og gerði grein fyrir 176 tegundum þeirra. Síðar tók Bergþór til við að þjappa undafíflunum saman í viðráðanlegri einingar og fækkaði tegundunum í 19. Árið 1989 birti hann niðurstöðurnar í Fjölriti Náttúrufræðistofnunar nr. 10 (í þrem heftum).
Alla tíð síðan hefur Bergþór horft til undafíflanna, bæði úti í náttúrunni og skoðað fleiri safneintök, þrátt fyrir annir við að koma frá sér ævistarfi sínu, þ.e. niðurstöðum mosarannsókna. Hann var aldrei fullkomlega sáttur við fyrri gjörð og sá því ástæðu til að yfirfara verkið og koma á framfæri nýjum niðurstöðum. Í þessu nýja fjölriti eru þær birtar. Töluverð uppstokkun hefur átt sér stað og tegundum fjölgað í 22.
Fjölritið á fullt erindi til allra sem stunda rannsóknir á plöntum eða njóta þeirra á annan hátt. Nauðsynlegt er að hafa Fjölrit nr. 10 til hliðsjónar við notkun ritsins, en það má einnig finna á pdf-formi hér að framan.
Bergþór Jóhannsson
hafði umsjón með rannsóknum á undafíflum á Náttúrufræðistofnun Íslands.

