Fjölrit 45
Komið er út 45. fjölrit Náttúrufræðistofnunar Íslands:
![]() |
| Fjölrit nr. 45. [PDF 1,55 MB] |
Íslenskt sveppatal I. Smásveppir (PDF, 1,55 MB)
eftir Helga Hallgrímsson náttúrufræðing og Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur, sveppafræðing NÍ.
Hér lítur dagsins ljós fyrri hluti skrár yfir þær tegundir sveppa sem þekktar eru á Íslandi. Í henni eru allar fylkingar sveppa og sveppslegra lífvera nema fylkingin kólfsveppir að meginhluta og þeir sveppir sem mynda fléttur. Verið er að vinna síðari hluti skrárinnar, Íslenskt sveppatal II fyrir hina stærri kólfsveppi (nálægt 550 teg.). Fléttur (rúmlega 700 teg.) verða síðan í þriðja heftinu.
1531 sveppategund
Í Íslensku sveppatali I - smásveppum er getið 1.531 tegundar en þegar þær óvissu, ógildu og líkast til rangt greindu eru teknar frá þá eru eftir 1.318 tegundir sem fundist hafa með bærilegri vissu á Íslandi til ársloka 2002. Við hverja tegund er getið heimildar þar sem finna má upplýsingar um tegundina hérlendis og þau nöfn sem um hana hafa verið notuð í hverri heimild fyrir sig, kjörlendi og undirlag, grófa útbreiðslu á landinu og oft metið hversu algeng tegundin er á útbreiðslusvæðinu.
Grunnur að válista íslenskra sveppa
Aftan við tegundatalið er skrá yfir hýsla, undirlag og beitu auk ítarlegrar sveppanafnaskrár með nöfnum, samheitum og misnefnum. Sveppatalið vísar á það sem ritað hefur verið um íslenska smásveppi og því ómissandi fyrir þá sem vinna með þessar lífverur. Upplýsingar sem sveppatalið geymir eru grunnur að því að hægt sé að gera válista fyrir íslenska sveppi. Þessar nálægt 2000 tegundir sveppa eiga drjúgan þátt í líffræðilegri fjölbreytni íslenskrar flóru.
Sveppatalið á rætur að rekja til þess er Helgi Hallgrímsson byrjaði árið 1985 að safna saman í spjaldskrá upplýsingum um sveppi sem fundist hafa hérlendis. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir tók við handriti sveppatalsins frá Helga og hefur síðustu árin unnið við að leita frekari upplýsinga um sveppina og koma handritinu í endanlegt form.
Fjölritið er 189 bls. að stærð.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
hefur umsjón með svepparannsóknum á Náttúrufræðistofnun Íslands


