Lokahefti Íslenskra mosa komið út
Bergþór Jóhannsson hefur lýst 604 íslenskum mosum
![]() |
| Bergþór Jóhannsson með nýja mosaheftið. |
Bergþór Jóhannsson hefur lýst 604 íslenskum mosum
Í dag, 22. maí 2003, á degi líffræðilegrar fjölbreytni kemur út lokahefti í ritröðinni Íslenskir mosar eftir Bergþór Jóhannsson mosafræðing á NÍ. Með heftinu sem er hið 21. í röðinni er komin heildstæð skrá yfir íslenska mosa ásamt lýsingum, útbreiðslukortum og teikningum af öllum þeim 604 mosategundum sem fundist hafa á landinu til þessa. Þeir tilheyra 194 ættkvíslum, 77 ættum, 29 ættbálkum, 7 flokkum og 3 fylkingum sem er lýst í heftunum.
Fyrsta mosaheftið var gefið út 1989 í Fjölritum Náttúrufræðistofnunar. Bergþór hefur teiknað alla mosana eftir íslenskum eintökum og einnig gefið þeim íslensk heiti, utan 12 tegunda sem ýmist eru gömul íslensk nöfn (barnamosar, gamburmosar og sverðmosi), eða eignuð Helga Hallgrímssyni, náttúrufræðingi.
![]() |
| Bergþór, Erling Ólafsson og Eyþór Einarsson grasafræðingur skeggræða ritið. |
Um nafngiftirnar segir Bergþór í eftirmála verksins að þær séu sá þáttur verksins sem hafi verið hvað erfiðastur en ljóst er að þar hefur hann unnið þrekvirki. Sem dæmi um nafngiftir Bergþórs sem athygli hafa vakið má nefna: hveranistill, laugablaðka, flagaskrúð, vætukrýli, skessuklukka, gullinkragi, urðavæskill, fjallagletta, lindaleppur og skjóðumosi.
Í þessu síðasta hefti, sem er 44. fjölrit Náttúrufræðistofnunar, er lýst 7 nýfundnum tegundum sem Bergþór hefur greint í vetur. Þar er einnig að finna ýmsar skrár, m.a. gagnmerka skrá yfir sjaldgæfa mosa.
Ekki fer á milli mála að með útgáfu þessa lokaheftis í ritröðinni Íslenskir mosar hefur mikill björn verið unninn. Bergþór hóf störf á NÍ árið 1964 og hefur æ síðan unnið að öflun þeirra gagna sem hér með hefur verið komið á framfæri. Þess má geta að þessi ritröð hefur hlotið mikið lof erlendra mosafræðinga.
![]() |
| Kollegi Bergþórs, Erling Ólafsson ritstjóri Fjölrita Náttúrufræðistofnunar, bauð til samsætis í tilefni dagsins og bakaði forláta köku í líki síðasta mosaheftisins. |
Bergþór var kjörinn heiðursdoktor við raunvísindadeild Háskóla Íslands 8. september 2000.
Listi yfir Fjölrit Náttúrufræðistofnunar




