Acta Botanica Islandica
Acta Botanica Islandica er ritröð um grasafræði sem hóf göngu sína árið 1972 og kemur eitt hefti út að meðaltali annað hvert ár. Birtar eru greinar eftir fræðimenn, innlenda sem erlenda, og eru flestar greinarnar á ensku en einnig á þýsku og norðurlandamálum.
Ritstjóri: Hörður Kristinsson
Nýjasta Acta heftið er nr. 14 og kom út í desember 2004. Meðal efnis er:
Botngróður í fjörum landsins
Tvær stærstu greinarnar í þessu hefti eru eftir Ivka Maria Munda, sem meðal Íslendinga er þekktari undir nafninu Jóka Munda. Hún er frá Slóveníu en hefur stundað rannsóknir á botngróðri í fjörum með ströndum Íslands síðan 1963, og birt niðurstöður þeirra í mörgum ritgerðum í ýmsum tímaritum, flestar í Nova Hedwigia og Botanica Marina en einnig í öðrum tímaritum. Tvær hafa áður birst í Acta Botanica Islandica og ein í Acta Naturalia, og yfirlit yfir upphaf rannsókna hennar á Íslandi birtist í Náttúrufræðingnum árið 1970. Margir þeirra sem búsettir hafa verið við sjávarsíðuna kring um landið kannast við Jóku Mundu, því hún naut gestrisni íbúanna og eignaðist vini meðal þeirra.
Í fyrri greininni tekur Jóka Munda fyrir fjörurnar á Tjörnesi, frá Húsavík og austur að Lóni í Kelduhverfi og birtir þar niðurstöður vettvangsrannsókna frá árunum 1973, 1977 og 1980. Síðari greinin er yfirlitsgrein sem gerir samanburð á þangsamfélögum allt í kring um landið, og skýrir hvernig þau breytast eftir mismunandi sjávarskilyrðum og hafstraumum við landið.
Sníkjusveppir á íslenskum fléttum
Svanhildur Jónsdóttir Svane er íslensk kona sem lærði grasafræði í Kaupmannahöfn. Hún vann við rannsóknir á mosaþembugróðri á Íslandi árin 1951–1952 og birtist grein um það efni í Náttúrufræðingnum árið 1963. Svanhildur hefur alla tíð verið búsett í Árósum í Danmörku og kennt þar við háskólann. Hún hefur komið margar ferðir til Íslands og safnað plöntum, einkum fléttum, og var það safn lengst af varðveitt við Árósaháskóla, en hefur nú verið flutt til Kaupmannahafnar. Vagn Alstrup sem er sérfræðingur í fléttuháðum sveppum, hefur farið yfir fléttusafn Svanhildar frá Íslandi og greint sníkjusveppi sem vaxa á þeim, og eru allmargir þeirra nýir fyrir Ísland.
Kalsvepppir og sveppir á taði
Tvær greinar í heftinu eru eftir Tamotsu Hoshino og meðhöfunda, og fjalla þær um ræktun tveggja kalsveppa af ættkvíslinni Typhula sem einangraðir voru á Íslandi og í Færeyjum. Hann kom til Íslands snemma vors árið 2000 og skoðaði kalsveppi og safnaði sýnum, einkum í nágrenni Akureyrar. Hér var hann í samvinnu við Bjarna Guðleifsson og Hörð Kristinsson, en grein eftir þá um þessa sveppi birtist í Acta Botanica Islandica árið 1977.
Að lokum er grein eftir Michael J. Richardson sveppafræðing í Edinborg, þar sem hann greinir frá 81 tegund taðsveppa, þar af rúmlega 30 sem hér er getið í fyrsta sinn frá Íslandi. Sveppina ræktaði hann upp af 32 sýnum af taði grasbíta sem hann safnaði á Íslandi sumarið 2002. Michael Richardson hafði nána samvinnu við Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur við þetta verk og eru sýni sveppanna varðveitt í sveppasafni NÍ.
Efnisyfirlit Acta Bot. 14:2004.
Munda, Ivka Maria. The Tjörnes Peninsula – a site of different vegetation patterns in the North of Iceland, bls. 3–52.
Svane, Svanhildur Jónsdóttir & Vagn Alstrup. Some lichenicolous fungi from Iceland. 53–58.
Hoshino, Tamotsu, Michiko Kiriaki, Isao Yumoto & Akira Kawakami. Genetic and biological characteristics of Typhula ishikariensis from Northern Iceland. 59–70.
Hoshino, Tamotsu, Magnus Gaard, Michiko Kiriaki & Isao Yumoto. A snow mold fungus, Typhula incarnata, from the Faroe Islands. 71–76.
Richardson, Michael J. Coprophilous fungi from Iceland. 77–102.
Munda, Ivka Maria. The structure and distribution of Fucacean associations in the Icelandic coastal area. 103–159.
14. hefti Acta Botanica Islandica er 156 blaðsíður að stærð.
Það fæst í afgreiðslu Náttúrufræðistofnunar við Hlemm 3 í Reykjavík og Hafnarstræti 97 á Akureyri.
Einnig er hægt að panta það símleiðis eða með tölvupósti.
