Jarðfræðikort af Íslandi
Náttúrufræðistofnun Íslands ber lögum samkvæmt að rannsaka og kortleggja berggrunn landsins sem og laus jarðlög (jarðgrunn) sem ofan á honum liggja. Á berggrunnskortum koma fram gígar, hraun, móberg, sprungur, misgengi o.fl. en á jarðgrunnskortum koma fram jökulgarðar og jökulmyndanir, hæstu strandlínur, skriður og framhlaup, áreyrar og sandar.
Unnið er að útgáfu korta af berggrunni landsins í mælikvarða 1:250.000 á alls níu kortablöðum en einnig eru gefin út kort í mælikvarðanum 1:500.000, þ.e. yfirlitskort af landinu öllu. Stofnuninni er einnig falið skv. lögum að skrá og flokka væntanleg námavinnslusvæði eftir magni, aðgengi, gæðum og verndargildi.

