Jarðfræðikort af Íslandi
Yfirlitskort 1:500.000
Berggrunnur
Heiti: Jarðfræðikort af Íslandi. Berggrunnur.
Mælikvarði: 1:500.000
Höfundur: Haukur Jóhannesson og Kristján Sæmundsson
Útgáfa: 2. útgáfa, 1998 - Ath. ný endurbætt útgáfa af kortinu kom út í 1:600.000 í ágúst 2009
Berggrunnskort af Íslandi sýnir stærstu drættina í jarðfræði landsins. Jarðlög eru flokkuð eftir aldri, gerð og samsetningu. Einnig sýnir kortið vel gosbelti landsins og dreifingu gossstöðva frá nútíma. Nútímahraunum er skipt í forsöguleg og söguleg hraun.
Rastamyndir á jpg-formi
Stærð:
800x570 px (150 dpi, 138 KB)
1500x1064 px (150 dpi, 371 KB)
Höggun
Heiti: Jarðfræðikort af Íslandi. Höggun.
Mælikvarði: 1:500.000
Höfundur: Haukur Jóhannesson og Kristján Sæmundsson
Útgáfa: 1. útgáfa, 1998 - Ath. ný endurbætt útgáfa af kortinu kom út í 1:600.000 í ágúst 2009
Höggunarkort af Íslandi sýnir jarðfræði landsins á nýstárlegan hátt. Jarðlög eru flokkuð eftir aldri en ekki eftir gerð og samsetningu. Sýnd eru eldstöðvakerfi, þ.e. megineldstöðvar og sprungu- og gangareinar, bæði virkar og útkulnaðar. Einnig eru sýnd helstu brotakerfi landsins og halli jarðlaga.
Stærð:
800x565 px (150 dpi, 133 KB)
1500x1060 px (150 dpi, 385 KB)
Jarðhiti
Heiti: Jarðhitakort af Íslandi.
Mælikvarði: 1:500.000
Höfundur: Helgi Torfason
Útgáfa: 1. útgáfa, 2003.
Kortið er hluti af skýrslu: Helgi Torfason, 2003: Jarðhitakort af Íslandi og gagnasafn um jarðhita. Náttúrufræðistofnun Íslands og Orkustofnun, NÍ-03016; OS-2003/062. 167 bls.
Jarðhitakort sýnir staðsetningu hitastig og eðli jarðhita á yfirborði en einnig hulinn jarðhita, þ.e. staði þar sem ummerki um jarðhita finnast ekki á yfirborði. Á kortinu er jarðhita skipt upp eftir því hvort hitinn kemur fram sem gufa eða vatn. Kolsýrulaugar eru merktar sérstaklega. Jarðhitastöðum er skipt í tíu hitastigsflokka og útlínur háhitasvæða áætlaðar. Einnig er staðsettur jarðhiti í sjó og undir jöklum þar sem það er þekkt. Jarðhiti er sýndur á berggrunnskorti af Íslandi. Kortið er gefið út í samvinnu við Orkustofnun.
Rastamyndir á jpg-formi
Stærð:
800x563 px (150 dpi, 97 KB)
1500x1056 px (150 dpi, 250 KB)




