Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Krabbaflær. Teikning: Jón Bogason

Válisti

Válisti fuglaVálistar eru skrár yfir lífverutegundir sem eiga undir högg að sækja eða eru taldar vera í útrýmingar­hættu í tilteknu landi eða svæði. Í válistum er verndarstaða tegundanna skráð í nokkra mismunandi hættuflokka eftir því hve alvarleg ógnin er sem tegundin stendur frammi fyrir. Hættuflokkarnir geta verið allt frá því að tegundin sé í „bráðri útrýmingarhættu“ (critically endangered) til þess að vera í „nokkurri hættu“ (lower risk). Jafnvel algengar tegundir (sbr. stuttnefja, svartbakur, hrafn) geta lent á válista ef þeim fækkar mikið á skömmum tíma.

Á alþjóða­vettvangi ganga válistar undir nafninu „rauðir listar“ (Red Lists). Þeir eru mikilvæg forsenda náttúruverndar og hafa flestar þjóðir sem Íslendingar bera sig saman við útbúið slíka lista fyrir algengustu hópa lífvera. Hugmyndin að baki válistum var þróuð af Alþjóða náttúruverndar­samtökunum IUCN snemma á 7. áratugnum. Síðan þá hefur IUCN viðhaldið válistum yfir plöntur og dýr sem eiga undir högg að sækja eða eru í útrýmingarhættu á heimsvísu. Árið 2006 voru rúmlega 16.000 tegundir lífvera skráðar á heimsválista IUCN.

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út tvo válista:

Válista 1 – Plöntur (1996) og

Válista 2 – Fuglar (2000).




Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Útgáfa > Válisti

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
  • Útgáfa
    • Ársskýrsla NÍ
    • Bæklingar
    • Acta Botanica
    • Bliki
    • Fjölrit
    • Kort
    • Náttúrufræðingurinn
    • Skýrslur
    • Válisti
      • Válisti 1-Plöntur
      • Válisti 2-Fuglar
    • Acta Naturalia Islandica
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica