Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Tímaritin Bliki og Náttúrufræðingurinn. © Anette Th. Meier

Válisti 1 - Plöntur

Válisti plantnaNáttúrufræðistofnun Íslands gaf út fyrsta hluta íslensks válista: Válista 1–Plöntur árið 1996. Í honum er gerð grein fyrir hættuflokkum Alþjóða náttúruverndarsamtakanna IUCN og birtir listar yfir a) blómplöntur og byrkninga, b) fléttur, c) mosa og d) þörunga í samræmi við þá flokkaskipan, alls 235 tegundir. Enn fremur eru birtar leiðbeiningar við mat og röðun í hættuflokkana og skrá yfir friðlýstar plöntutegundir á Íslandi.

Válisti 1 - Plöntur er 82 bls. að stærð, með 158 útbreiðslukortum, 21 ljósmynd af háplöntum og fléttum, eftir Eyþór Einarsson, Hörð Kristinsson og Kristbjörn Egilsson og 15 teikningum af mosum eftir Bergþór Jóhannesson. Höfundar efnis eru Eyþór Einarsson, Hörður Kristinsson, Bergþór Jóhannsson, Náttúrufræðistofnun Íslands og Karl Gunnarsson, Hafrannsókna­stofnuninni. 82s.

Hægt er að panta válistann með að senda tölvupóst á bokasafn@ni.is en hann er einnig til sölu á skrifstofum Nátttúrufræðistofnunar í Reykjavík og á Akureyri og kostar 1000 krónur.

Endurskoðun á válistaflokkun háplantna var gerð árið 2008. Alls voru 79 tegundir metnar samkvæmt nýjustu skilyrðum IUCN (Alþjóða náttúruverndarsamtakanna) sem samþykkt voru árið 2000 en þau skilyrði eru nokkuð breytt frá þeim skilyrðum sem giltu þegar fyrsta útgáfa válistans kom út.


Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Útgáfa > Válisti > Válisti 1-Plöntur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
  • Útgáfa
    • Ársskýrsla NÍ
    • Bæklingar
    • Acta Botanica
    • Bliki
    • Fjölrit
    • Kort
    • Náttúrufræðingurinn
    • Skýrslur
    • Válisti
      • Válisti 1-Plöntur
      • Válisti 2-Fuglar
    • Acta Naturalia Islandica
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica