Eldgos á Reykjanesskaga 2021–2024

Þrívíddarlíkön af eldgosinu við Fagradalsfjall og Litla-Hrút eru unnin í samvinnu við Almannavarnir, Landmælingar Íslands og Háskóla Íslands.

Hjá Náttúrufræðistofnun Íslands er starfrækt loftljósmyndastofa þar sem unnið er að jarðfræðikortlagningu með myndmælingatækni, þar sem teknar eru ljósmyndir úr lofti og myndirnar notaðar við gerð þrívíddarlíkana. Þessi aðferð nýttist vel við kortlagningu á gossvæðinu í Geldingadal árin 2021 og 2022, Litla-Hrút árið 2023 og Sundhnúkagíga 2023 og 2024, en með þrívíddarlíkönunum má áætla rúmmál og þykkt hraunsins, hraunrennsli og margt fleira.

Þrívíddarlíkönin eru unnin af myndmælingateymi Náttúrufræðistofnunar Íslands. Myndirnar eru teknar úr flugvél og síðan unnið með þær og útbúin líkön í hugbúnaðinum Agisoft Metashape. Líkönin eru vistuð hjá Sketchfab. Eitt líkananna sem birt hafa verið er frá því áður en eldgos hófst en önnur líkön sýna stöðu mála með um það bil viku millibili.

Með þrívíddarlíkönunum var hægt að fylgjast með framvindu gossins og eru þau fyrst og fremst ætluð til fróðleiks og skemmtunar. Hægt er að hafa samband við stofnunina til að fá nákvæmari gögn.

Smellið á tvíátta ör neðst í hægra horni til að opna þrívíddarlíkönin í stærri glugga.

Sundhnúkagígar 2024

20. mars 2024:

 
15. janúar 2024:

14. janúar 2024:

Sundhnúkagígar 2023

21. desember 2023:

Litli-Hrútur 2023

23. júlí 2023:

13. júlí 2023:

Fagradalsfjall/Merardalir 2022

Fagradalsfjall/Geldingadalir 2021