Snarrótarvist
Snarrótarvist
L9.4
Eunis-flokkun
E3.4132 Boreal tufted hairgrass meadows.
Snarrótarvist

Snarrótarvist í Vatnsdalsfjalli í Austur-Húnavatnssýslu. Snarrótarpuntur er ráðandi í gróðri og setur sterkan svip á land. Gróðursnið NV- 10-07. – Boreal tufted hairgrass meadow in northern Iceland.

Snarrótarvist við Sandbrekku í Hjaltastaðaþinghá. Gróskumikið graslendi með snarrótarpunti og hálíngresi. Gróðursnið AL-10-02. – Boreal tufted hairgrass meadow in eastern Iceland.
Lýsing
Mjög gróskumikið graslendi á flatlendi og í brekkum, vaxið snarrótarpunti og fleiri graslendistegundum. Vistgerðin finnst einkum á láglendi í gömlu ræktar- og beitilandi þar sem jarðvegur er fremur þykkur og frjósamur. Land er algróið, gróður hávaxinn, æðplöntur algjörlega ríkjandi, mosi er lítill í sverði, fléttur finnast vart.
Plöntur
Vistgerðin er miðlungi rík af æðplöntum, en mjög fátæk af mosum og fléttum. Ríkjandi tegundir æðplantna eru snarrótarpuntur (Deschampsia caespitosa) og hálíngresi (Agrostis capillaris). Algengastir mosa eru engjaskraut (Rhytidiadelphus squarrosus), tildurmosi (Hylocomium splendens) og móasigð (Sanionia uncinata) en af fléttum finnst helst himnuskóf (Peltigera membranacea).
Jarðvegur
Áfoksjörð er ríkjandi en einnig finnst lífræn jörð á framræstu landi. Jarðvegur er allþykkur, miðlungi ríkur af kolefni og sýrustig frekar lágt.
Fuglar
Meðalríkt fuglalíf, algengustu varpfuglar eru þúfutittlingur (Anthus pratensis), hrossagaukur (Gallinago gallinago), lóuþræll (Calidris alpina) og stelkur (Tringa totanus).
Líkar vistgerðir
Língresis- og vingulsvist, sjávarkletta- og eyjavist og blómgresisvist.
Útbreiðsla
Finnst á láglendi í öllum landshlutum, einkum á landbúnaðarsvæðum. Algengust um suðvestan- og norðanvert landið.
Verndargildi
Hátt. Vistgerðin er á lista Bernarsamningsins frá 2014 yfir vistgerðir sem þarfnast verndar.

Snarrótarvist er allútbreidd en hún finnst í 28% landsreita. Flatarmál hennar reiknast um 700 km2, óvissa nokkur, óglögg skil við líkar vistgerðir. – The habitat type is rather common in Iceland and is found within 28% of all grid squares. Its total area is estimated 700 km2.

Gróðurþekja æðplantna, mosa og fléttna. Sýnd eru meðaltöl fyrir heildarþekju og þekju ±staðalskekkja. Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn allra vistgerða á landi. – Average total % cover of all plant groups (Heild), vascular plants (Æðplöntur), bryophytes (Mosar) and lichens (Fléttur), shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Tegundafjöldi á sniðum. Sýnd eru meðaltöl fyrir fjölda tegunda æðplanta, mosa og fléttna ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn fyrir allar vistgerðir. – Average species richness of vascular plants, bryophytes and lichens, shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Raki í jarðvegi. Sýnd er tíðni rakaflokka; forblautt, blautt, deigt og þurrt. Innan sviga er fjöldi mælinga. – Soil moisture classes %, n within brackets; classes are Very wet (Forblautt), Wet (Blautt), Moist (Deigt) and Dry (Þurrt).
Ríkjandi tegundir og tegundahópar í vistgerðinni. Sýnd er þekja og röð. – Order and % cover of dominant species.
Ýmsar niðurstöður: Gróðurhæð (Gh); Jarðvegsþykkt (Jþ); Kolefni í jarðvegi (C%); Sýrustig í jarðvegi (pH); Halli lands (H); Grýtniþekja (Gr). Sýnd eru meðaltöl ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Skyggðar súlur sýna spönn viðkomandi breytu fyrir allar vistgerðir. – Various results: Average vegetation height (Gh) and soil depth (Jþ), soil carbon (C%) and pH, land slope (H) and surface rocks (Gr) shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.