Láglendi Skagafjarðar
VOT-N 6
Hnit – Coordinates: N65,69860, V19,40580
Sveitarfélag – Municipality: Skagafjörður, Akrahreppur
IBA-viðmið – Category: B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 18.470 ha
Láglendi Skagafjarðar frá ströndinni og inn fyrir þjóðveg 1 er yfirleitt marflöt flæðislétta með víðfeðmum flæðilöndum, vötnum og ám. Mikið fuglalíf er á þessu svæði, t.d í friðlandinu í Skógum (Kristinn H. Skarphéðinsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1990, Guðmundur A. Guðmundsson 2006). Er það alþjóðlega mikilvægt á varptíma fyrir flórgoða (42 pör) og sennilega einnig grágæs. Eins fyrir helsingja á vorin (6.949 fuglar), álft (393 fuglar) og grágæs (5.000 fuglar) á fjaðrafellitíma.
Miklavatn, Skógar og nálæg votlendi voru friðlýst árið 1977, Austara-Eylendið er á náttúruminjaskrá og IBA-skrá ásamt Miklavatni og Skógum.
Helstu fuglategundir á láglendi Skagafjarðar – Key bird species in the lowlands of Skagafjörður
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Flórgoði1 | Podiceps auritus | Varp–Breeding | *42 | 2004 | 6,0 | B1i, B2 | |
Álft2 | Cygnus cygnus | Fellir–Moult | 393 | 2005 | 1,5 | B1i | |
Grágæs3 | Anser anser | Fellir–Moult | 5.000 | 2002 | 6,2 | B1i | |
Helsingi4 | Branta leucopsis | Far–Passage | 6.949 | 1994 | 18,1 | B1i | |
*Pör. – Pairs. 1Þorkell Lindberg Þórarinsson, Ævar Petersen, Árni Einarsson, Halldór W. Stefánsson, Yann Kolbeinsson, Róbert A. Stefánsson, Böðvar Þórisson og Þórdís V. Bragadóttir 2011. Dreifing og fjöldi flórgoða á Íslandi 2004–2005. Bliki 31: 31–35. 2Ólafur Einarsson, óbirt heimild – unpublished source. 3Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – IINH, unpublished data. 4Percival, S.M. og T. Percival 1997. Feeding ecology of Barnacle Geese on their spring staging grounds in northern Iceland. Ecography 20: 461–465. |
English summary
The wetlands and floodplains of the lowland valley of Skagafjörður, N-Iceland, are internationally important for breeding Podiceps auritus (42 pairs), moulting Cygnus cygnus (393 birds) and Anser anser (5,000 birds), and staging Branta leucopsis (6,949 birds).
Opna í kortasjá – Open in map viewer
Heimildir – References
Guðmundur A. Guðmundsson 2006. Fuglalíf í friðlandinu við Miklavatn 2003. Náttúrustofa Norðurlands vestra, NNV-2006-002. Sauðárkrókur: Náttúrustofa Norðurlands vestra.
Kristinn H. Skarphéðinsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1990. Fuglalíf í Skógum, Skagafirði og nágrenni, 1987. Bliki 9: 49–66.