Veiðivötn

VOT-S 2

Hnit – Coordinates: N64,15620, V18,71560
Sveitarfélag – Municipality: Rangárþing ytra
IBA-viðmið – Category: A4i, B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 22.880 ha

Veiðivötn eru vatnaklasi suðvestan við Vatnajökul, á milli Þórisvatns og Tungnaár. Þar er fjölskrúðugt fuglalíf (Örn Óskarson 2000, 2013) og ná himbrimi (19 óðul) og húsönd alþjóðlegum verndarviðmiðum. Allt að 25 húsendur hafa sést á varptíma á síðustu árum (Örn Óskarsson 2013) og 58 að vetri. Þá hafa stundum verið þar um 1.000 duggendur í fjaðrafelli.

Veiðivötn eru á náttúruminjaskrá og IBA-skrá.

Helstu fuglategundir við Veiðivötn – Key bird species by Veiðivötn

Tegund
Species
Latneskt heiti
Scientific name
Árstími
Season
Fjöldi (fuglar)
Number (birds)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Himbrimi1 Gavia immer Varp–Breeding *19 2016 3,8 B2
Húsönd2 Bucephala islandica Varp–Breeding 25 2013 1,3 A4i, B1i
Húsönd3 Bucephala islandica Vetur–Winter 58 1977 2,9 A4i, B1i
*Þekkt óðul. – Known territories.
1Örn Óskarsson, óbirt heimild. – Unpublished source.
2Örn Óskarsson 2013. Húsandarvarp í Veiðivötnum. Fuglar 9: 54–59.
3Arnþór Garðarsson 1978. Íslenski húsandarstofninn. Náttúrufræðingurinn 48: 162–191.

English summary

Veiðivötn lakes in the interior highland plateau of S-Iceland are internationally important for breeding Gavia immer (19 territories) as well as breeding (25 birds) and wintering (58 birds) Bucephala islandica.

Opna í kortasjá – Open in map viewer

 

Heimildir – References

Örn Óskarsson 2000. Veiðivötn: Konungsríki himbrimans. Bliki 20: 37–59.

Örn Óskarsson 2013. Húsandarvarp í Veiðivötnum. Fuglar 9: 54–59.