Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Dílaygla - Peridroma saucia (Hübner, 1808)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera  Ætt: Noctuidae

Dílaygla - Peridroma saucia

Dílaygla, lengd aftur á vængenda 26 mm. ©EÓ

[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Víða um heim; Evrópa og Asía, N-Afríka, N- og S-Ameríka. Vegna flökkueðlis finnst tegundin mun víðar en þar sem hún elst upp. Í Evrópu eru raunheimkynni syðst í álfunni en þaðan dreifist hún norður á bóginn til sunnanverðrar Skandinavíu og Finnlands en dílaygla er tiltölulega fátíður gestur á Norðurlöndum. Hefur og fundist í Færeyjum.

Ísland
Dílaygla hefur fundist á allnokkrum stöðum allra syðst á landinu, frá höfuðborgarsvæðinu austur í Öræfi.

Lífshættir
Dílaygla flýgur síðsumars og langt fram á haustið. Hún liggur væntanlega í dvala á fullorðinsstigi því fiðrildi birtast aftur á vorin. Lirfur vaxa upp fyrri hluta sumars og púpa sig fullvaxnar í spunahylki í jarðvegi. Dæmi eru um það að gestkomandi dílayglur snemma sumars í nágrannalöndunum geti af sér nýja kynslóð sem á þó ekki möguleika á að lifa veturinn af. Lirfur leggja sér til munns allskyns jurtkenndar plöntur.

Almennt
Tegundin er furðu tíður gestur hér á landi ef horft er til þess hve fátíð hún er á hinum Norðurlöndunum nema helst í Danmörku. Hér hefur hennar orðið vart frá seinnihluta júlí og fram í nóvember, í mestum fjölda frá miðjum september til miðs október. Einnig hafa dílayglur fundist í lok maí og byrjun júní. Eitt dæmi er til þess að tegundin hafi náð að fjölga sér hér á landi. Lirfa fannst haustið 1994 undir Eyjafjöllum sem var alin þar til hún púpaði sig. Þann 15. nóvember skreið svo dílaygla úr púpunni.

Dílaygla er einkennalítil ygla. Framvængir eru grábrúnir, gulbrúnir eða bronsleitir með lítt merkjanlegu mynstri. Hún þekkist helst á litlum svörtum dílum sem raðast á frambrún framvængja.

Heimildir

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Patursson, A. & J.-K. Jensen 2002. Nøvn til firvaldar (Lepidoptera) í Føroyum. Sérprent. 5 bls.

Skou, P. 1991. Nordens Ugler. Håndbog over de i Danmark, Norge, Sverige, Finland og Island forekommende arter af Herminiidae og Noctuidae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 5. Apollo Books, Stenstrup. 565 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 14. janúar 2010.

 


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan


 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Flækingar með vindum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica