Flikrufön - Amblyptilia acanthadactyla (Hübner, 1813)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Pterophoridae
![]() |
|
Flikrufön. 9 mm. ©EÓ [Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Nær gjörvöll Evrópa, N-Afríka og Litla-Asía; Færeyjar.
Ísland
Fjórir fundarstaðir syðst á landinu; Innri-Njarðvík, Kópavogur, Tumastaðir í Fljótshlíð og Kvísker í Öræfum.
Lífshættir
Flikrufön lifir við afar fjölbreytileg skilyrði. Mikill fjöldi plöntutegunda er á fæðulista lirfanna sem éta ung blöð þeirra og blóm. Þær púpa sig á hýsilplöntunum. Það eru tvær kynslóðir af fiðrildum á ári. Sú fyrri flýgur í júní til ágúst, sú síðari fer á flug í október og fljúga þau fiðrildi allan veturinn þegar skilyrði leyfa og fram til næsta vors.
Almennt
Flikrufön er fágætur flækingur hér á landi frá Evrópu. Hún fannst hér fyrst í Kópavogi 8. október 1998 og hafði þá slæðst inn í hús. Ekki var þá að fullu ljóst hvort um flæking með vindum væri að ræða eða slæðing með varningi. Fyrirspurn um tegundina var send til fræðimanns erlendis sem kannaðist ekki við að hún hefði sýnt af sér flökkueðli og væri að berast langar leiðir yfir opið haf. Rúmu ári síðar fannst svo annað eintak, þ.e. 26. október 1999 í Innri-Njarðvík. Það fannst einnig innanhúss og sama spurning og áður kom upp varðandi upprunann. Að flikrufanir væru að flækjast hingað til lands á eigin vængjum staðfestist fyrst þegar eintak kom í fiðrildagildru á Kvískerjum í Öræfum 14.–21. október 2005 og aftur 9.–16. júní 2006. Haustið 2009 fundust flikrufanir enn í gildrum, þ.e. dagana 17.–24. september, tvær á Kvískerjum og ein að auki á Tumastöðum í Fljótshlíð. Þess má og geta að tegundin hefur fundist þrisvar sinnum í Færeyjum en tímasetningarnar þar falla ekki að komudögum hennar hingað til lands.
Fanir eru sérkennilega sköpuð fiðrildi en á flestum tegundum eru vængirnir eins og klofnir upp í flipa eða fanir og standa þeir ávallt beint út frá bolnum. Bolurinn er afar grannur, fætur langir og grannir með langa og áberandi spora. Tegundirnar eru hins vegar margar hverjar hver annarri líkar. Aðeins ein tegund lifir á Íslandi, þ.e. steinfön (Stenoptilia islandicus). Sú er einlit ljósgul en flikrufön er með drapplita, flikrótta framvængi með dökkbrúnum, þríhyrnulaga flekkjum út til endanna. Tegundirnar tvær eru annars af sama sköpulagi og álíka stórar.
Heimildir
Gielis, C. 1996. Microlepidoptera of Europe. Volume 1. Pterophoridae. Apollo Books, Stenstrup. 222 bls.
Jensen, J.-K. & H.E. Sivertsen 2007. Nye og sjældne fund af sommerfugle på Færøerne 2005–2006. Lepidoptera bind IX, nr. 3: 96–102.
©Erling Ólafsson, 19. maí 2010.
Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan


