Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Netluygla - Xestia c-nigrum (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta  Ættbálkur: Lepidoptera  Ætt: Noctuidae

Netluygla - Xestia c-nigrum

Netluygla (safneintak), vænghaf 37 mm. ©EÓ  [Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Norðurhvel. Evrópa norður fyrir miðbik Skandinavíu og suður til N-Afríku, Asía austur til Kyrrahafs, norðanverð N-Ameríka stranda á milli og suðum með Klettafjöllum; Færeyjar.

Ísland
Fágætur flækingur fundinn á tveim stöðum á Suðausturlandi, Kvískerjum í Öræfum og Höfn í Hornafirði.

Lífshættir
Tvær kynslóðir koma fram á sumri nema nyrst á útbreiðslusvæðinu norðanverðu, t.d. í N-Englandi og Skotlandi, þar sem sumartíminn dugar aðeins einni kynslóð. Í nágrannalöndum fljúga fiðrildin frá lokum maí og fram í byrjun október. Kynslóðirnar renna saman og eru skilin milli þeirra eftir miðjan júlí. Síðari kynslóðin er mun fjölliðaðri. Lirfurnar hafa fjölbreyttan matseðli en þær nærast á allskyns plöntum, bæði trjám, runnum og jurtkenndum tegundum en netluyglan hefur dálæti á brenninetlu (Urtica dioica). Lirfur finnast frá hausti til vors, liggja í vetrardvala og nærast jafnvel að einhverju marki í mildum vetrum. Þær púpa sig í jörðu að dvalanum loknum. Einnig þroskast lirfur á miðju sumri þar sem kynslóðir eru tvær.

Almennt
Það er flakk á netluyglum í Evrópu á haustin en talið er að fjölgun á hausti á Bretlandseyjum sé þannig til komin að einhverju leyti að yglur berist þangað frá suðlægari slóðum. Netluygla fannst fyrst hérlendis í september 1998 á Kvískerjum í Öræfum er ein slík kom í ljósgildru. Í sama mánuði 2002 náðust tvær til viðbótar á sama stað og sama hátt. Um miðjan janúar 2004 fannst ein lifandi innanhúss í Höfn í Hornafirði sem óneitanlega bendir til hún hafi borist til landsins haustið á undan og jafnvel komið sér fyrir til vetrarsvefns. Í ágúst sama ár náðist svo enn ein á Kvískerjum og þrjár í september 2008. Loks bar svo við að í fjölbreyttri fiðrildagöngu sem barst til landsins í kringum 10. september 2010 að netluyglan var sú tegund sem kom í gildrur á Kvískerjum í langmestum fjölda en á nokkrum nóttum veiddust allt að 50 yglur. Af framanskráðu má sjá að netluyglu er helst að vænta hingað til lands í september.

Netluygla er meðalstór ygla og afar breytileg á lit. Grunnlitur framvængja er ýmist ljósrauðbrúnn, grábrúnn, svarbrúnn eða hvað sem er þar á milli. Hún er þó alltaf auðþekkt á allstórum ljósgráum þríhyrningslaga bletti við framjaðar vængsins, u.þ.b. á miðjum vængnum sem gengur inn í svartan reit inni á vængfletinum. Til hliðar á frambol mynda hreisturflögurnar þorn eða toppa sem lyftast upp frá bolnum.

Heimildir

Jensen, J.-K. & H.E. Sivertsen 2004. Nye og sjældne fund af sommerfugle på Færøerne. Lepidoptera bind VIII, nr. 7: 225–233.

Ríki Vatnajökuls. Frétta- og upplýsingavefur Hornafjarðar 2004. Björn hefur forustuna með 79 fuglategundir. http://www2.hornafjordur.is/fuglar/nr/1027 [skoðað 15.9.2010]

Rigth Health. Setaceous Hebrew Character. http://www.righthealth.com/topic/Setaceous_Hebrew_Character [skoðað 15.9.2010]

Skinner, B. 1998 (second edition). Colour Identification Guide to Moths of the British Isles (Macrolepidoptera). Viking, Penguin Group, London. 276 bls.

Skou, P. 1991. Nordens Ugler. Håndbog over de i Danmark, Norge, Sverige, Finland og Island forekommende arter af Herminiidae og Noctuidae (Lepidoptera). Danmark Dyreliv 5. Apollo Books, Stenstrup. 565 bls.

Wikipedia. Setaceous Hebrew Character. http://en.wikipedia.org/wiki/Setaceous_Hebrew_Character [skoðað 15.9.2010]

 

©Erling Ólafsson, 15. september 2010.


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan





Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Flækingar með vindum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica