Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Kóngasvarmi - Agrius convolvuli (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Sphingidae

Kóngasvarmi - Agrius convolvuli

Kóngasvarmi. 50 mm (bolur). ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
S-Evrópa, Asía, Afríka og Ástralía. Náttúruleg heimkynni heittempruðum löndum og hitabeltislöndum. Flækingur víða utan heimkynnanna.

Ísland
Fundinn á láglendi í öllum landshlutum, langflestir fundarstaðir á landinu sunnanverðu.

Lífshættir
Kóngasvarmi er fluggarpur sem oft leggst í langflug frá náttúrulegum heimkynnum á heittempruðum svæðum og hitabeltislöndum. Hann getur flogið á 55 km hraða og hagstæðir vindar bæta um betur. Í réttum heimkynnum þroskast nokkrar kynslóðir á ári. Þó flakkið eigi sér einkum stað síðsumars og á haustin berst hann stöku sinnum norður á bóg fyrr og getur þá jafnvel náð að geta af sér nýja kynslóð í nýjum högum. Kóngasvarmi sækir blómasafa í lyktarsterk blóm á nóttinni, sveimar þá nær kyrr í loftinu við blómin líkt og kólibrífugl og teygir útréttan, langan sogranann ofan í blómið. Lirfurnar éta akurklukku (Convolvulus arvensis) öðrum plöntum fremur.

Almennt
Kóngasvarmi er nánast árlegur flækingur til Íslands og stundum berst hingað nokkur fjöldi samtímis. Fyrsta tímasetta tilvikið er frá 1899. Kóngasvarmi dylst engum þar sem hann fer því hann er eitt stærsta skordýr sem hingað berst, með vænghaf allt að 12 cm. Hann er þó fyrst og fremst á ferli í myrkri og getur þá farið huldu höfði. Hann á það til að fljúga á móti ljósi inn um opna glugga. Í ræktarlegum görðum kann hann að staldra við einkum þar sem skógartoppur (Lonicera periclymenum) stendur í ilmandi blóma síðsumars. Kóngasvarmi hefur fundist hérlendis frá lokum júlí og nokkuð fram í október. Hann er auðþekktur á stærðinni og hefur stundum verið mistekinn fyrir fugl.

Heimildir

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Hydén, N., K. Jilg & T. Östman 2006. Nationalnuckeln till Sveriges flora och fauna. Fjärilar: Ädelspinnare – tofsspinnare. Lepidoptera: Lasiocampidae – Lymantriidae. Artdatabanken, SLU, Uppsala. 480 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan



Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Flækingar með vindum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica