Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Asparygla - Agrochola circellaris (Hufnagel, 1766)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Noctuidae

Asparygla - Agrochola circellaris

Asparygla. 17 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Í Evrópu á belti frá Miðjarðarhafslöndum norðanverðum og norður í miðbik Skandinavíu, austur um Rússland til Armeníu og Litlu-Asíu.

Ísland
Sunnan- og suðaustanvert landið frá Hafnarfirði og austur til Egilsstaða, einnig Miðfjörður í Húnavatnssýslu.

Lífshættir
Lirfur klekjast úr eggjum á vorin og þær vaxa upp frá apríl og fram í júlí er þær púpa sig. Fiðrildin skríða úr púpum í byrjun september og sjást á flugi fram í miðjan október og jafnvel lengur. Þau verpa á þessu tímabili og eggin brúa veturinn til vors. Lirfurnar nærast fyrst á blómknöppum og blómum á álmi (Ulmus glabra), öspum (Populus) og víði (Salix) en síðar á ýmsum tegundum plantna, m.a. túnfíflum (Taraxacum). Asparygla er mikið flökkufiðrildi.

Almennt
Asparygla fannst fyrst hérlendis í seinni hluta september 1953 nær samtímis í Öræfum og á Djúpavogi og næstu dagana fannst álitlegur fjöldi í Öræfum. Þetta er fyrsta skráða ganga af asparyglum til landsins frá Evrópu. Tegundin fannst af og til eftir þetta, en þegar vöktun fiðrilda með ljósgildrum hófst árið 1995 kom í ljós að líklega slæddist hún til landsins á hverju hausti. Fjöldinn hefur þó reynst afar breytilegur. Reyndar var löngum óljóst hvort asparygla tilheyrði í raun landlægu fánunni en ljósgildruveiðarnar benda til hins gagnstæða. Asparyglur hafa fundist hér frá lokum ágúst og fram eftir nóvember, en langflestar hafa veiðst um miðjan september og sýnir brött veiðikúrfan þá svo varla verði um villst að um flækingstegund er að ræða.

Heimildir

Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Skou, P. 1991. Nordens Ugler. Håndbog over de i Danmark, Norge, Sverige, Finland og Island forekommende arter af Herminiidae og Noctuidae (Lepidoptera). Danmarks Dyreliv 5. Apollo Books, Stenstrup. 565 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Flækingar með vindum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica