Flokkun eftir ættbálkum

Smádýr á landi tilheyra nokkrum fylkingum dýra. Tegundir sem hér eru kynntar á vef Náttúrufræðistofnunar tilheyra þremur fykingum. Þar eru liðdýr (Arthropoda) í mestum fjölda, en lindýr (Mollusca) og liðormar (Annelida) koma einnig við sögu.

Fylking liðdýra er tegundaríkasta fylking dýraríkisins og má finna fulltrúa hennar alls staðar á jörðinni þar sem líf fær mögulega þrifist. Þau liðdýr sem fjallað verður um hér á vefnum heyra undir átta flokka, þ.e. skordýr (Insecta), áttfætlur (Arachnida), margfætlur (Chilopoda), þúsundfætlur (Diplopoda), hvítfætlur (Symphyla), stórkrabba (Malacostraca), snigla (Gastropoda) og jarðorma (Oligochaeta).

Flokkar skiptast í ættbálka sem samanstanda af ýmsum dýrahópum sem flestir kannast við. Meðal skordýranna má t.d. nefna fiðrildi (Lepidoptera), bjöllur (Coleoptera) og tvívængjur (Diptera) sem dæmi um kunnuglega ættbálka og köngulær (Araneae), langfætlur (Opiliones) og sporðdreka (Skorpiones) sem kunnuglegar áttfætlur.

Á pödduvefnum hefur tegundum verið skipað í efnisflokka eftir því hvar þær er að finna í grófum dráttum eða hvernig þær eru til komnar hér á landi. Hér til hliðar er hins vegar gert kleift að skoða hvern skyldleikahóp fyrir sig.

Til baka, , Prenta greinina

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: