Hvítfætla - Scutigerella sp.
Fylking: Arthropoda Flokkur: Symphyla Ættbálkur: Scolopendrellia Ætt: Scutigerellidae
![]() |
|
Hvítfætla. 4 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla og flokkun
Ættkvíslin Scutigerella hefur víða útbreisðlu. Um 30 tegundum hefur verið lýst en aðeins fáar þeirra eru það glögglega afmarkaðar að auðvelt sé að greina þær til tegunda. Íslenska tegundin er ekki þar á meðal en hún tilheyrir tegundahópi sem finnst í Evrópu og N-Ameríku. Fátt einkennir einstakar tegundir þessa hóps og breytileikinn innan tegunda virðist nokkur. Ættkvíslin þarfnast úttektar og endurskoðunar á skilgreiningum tegunda.
Ísland
Nokkrir fundarstaðir á suðvestanverðu landinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Kleppjárnsreykir í Borgarfirði, Hveragerði.
Lífshættir
Kjörlendi hvítfætlu eru húsagarðar og jarðhitasvæði og er helst að rekast á hana undir steinum í blómabeðum og á volgri jörð. Þar heldur hún sig í lausri mold við hátt rakastig en forðast bleytu. Hún nærist bæði á lifandi og rotnandi plöntuhlutum. Hvítfætlur hafa fundist hér frá byrjun maí og til loka ágúst.
Almennt
Hvítfætla fannst fyrst við gróðurhús á Suðurreykjum í Mosfellssveit í ágúst 1977. Fljótlega upp úr því fannst hún í húsagörðum á höfuðborgarsvæðinu, síðar við heitan læk á jarðhitasvæði í Borgarfirði og á óræktaðri yljörð í Hveragerði. Hún hefur e.t.v. borist til landsins eftir miðja 20. öld. Hvítfætla hefur ekki náð sér á strik verulega og er sennilega háð þeim skilyrðum sem hún hefur valið sér í görðum og við jarðhita. Í miklum fjölda getur hún reynst skaðvaldur í ræktun en ólíklegt er að það gerist hér á landi. Hvítfætlan er auðþekkt frá öðrum íslenskum fjölfætlum, alhvít, grönn og viðkvæm, með 14 bolliði, 12 fótapör, tvær álmur á afturenda sem vísa aftur og nokkuð upp á við og langa, granna fálmara.
Heimildir
Andersson, G., B.A. Meidell, U. Scheller, J.-Å. Winqvist, M. Osterkamp Madsen, P. Djursvoll, G. Budd & U. Gärdenfors 2005. Nationalnyckeln till Sveriges flora och fauna. Mångfotingar. Myriapoda. Artdatabanken, SLU, Uppsala. 351 bls.
Scheller, U., A. Fjellberg & Erling Ólafsson 2006. New records of Myriapoda (Arthropoda) from Iceland and the Faroe Islands. Ent. Meddr 74: 87–89.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009
Allar hvítfætlur | Allar pöddur | Íslenska fánan


