Garðaklaufhali - Forficula auricularia (Ström, 1768)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Dermaptera Ætt: Forficulidae
![]() |
|
Garðaklaufhali, karldýr. 16 mm. ©EÓ |
![]() |
| Garðaklaufhali, kvendýr. 14 mm. ©EÓ [Smellið á myndir til að stækka] |
Útbreiðsla
Umhverfis norðurhvel; Evrópa, Asía, Miðjarðarhafslönd, N-Ameríka; sunnan til á Norðurlöndum, Hjaltlandseyjar, Færeyjar.
Ísland
Garðaklaufhalar hafa fundist víða um land, flestir á höfuðborgarsvæðinu, einnig í Grindavík, Búðardal, Ólafsvík, á Grundarfirði, Hvammstanga, Blönduósi, Sauðárkróki og Akureyri, svo og undir Eyjafjöllum.
Lífshættir
Garðaklaufhali nærist einkum á rotnandi plöntu- og dýraleifum og er einkar sólginn í skemmda ávexti. Dýrin athafna sig einkum að næturlagi og safnast þá gjarnan mörg saman í æti. Á veturna koma kvendýrin sér fyrir í holu í jörðu og verpa þar á tímabilinu nóvember til mars. Þau annast eggin og sjá til þess að þau þroskist eðlilega og verði ekki sýkingum að bráð. Þegar eggin klekjast deyja mæðurnar og eru étnar upp af afkvæmum sínum.
Almennt
Garðaklaufhali berst reglulega til landsins með ýmsum varningi, ekki síst grænmeti. Hann berst í mismiklum mæli eftir því hvernig honum vegnar úti í Evrópu, en árskipti eru af honum þar. Hann fannst fyrst í Reykjavík 1902. Stundum voru uppi vísbendingar um að hann væri að stinga sér niður á landinu, t.d. í gróðurhúsum. Slíkum tilfellum fór svo fjölgandi þegar leið að aldamótum. Dæmi voru um fasta bólsetu í húsum eða þeim tengt á Álftanesi og í Búðardal. Ljóst er orðið að garðaklaufhali hefur sest að í Hólahverfi í Reykjavík en þar finnst hann árlega í nokkrum mæli á vissum stöðum.
Haustið 2011 urðu þáttaskil hjá klaufhalanum. Verulegur fjöldi fannst í tveim aðskildum hverfum í Hafnarfirði, annars vegar í kjallara gamals húss, einnig í laufbyng í aðliggjandi garði þegar að var gáð, og hins vegar í kringum blómapott á verandarpalli. Þar leituðu dýrin einnig inn í húsið.
Klaufhalar þekkjast á tveim hörðum stöfum aftur úr bolnum sem eru kræktir á karldýrum en nær beinir á kvendýrum.
Heimildir
Bjarni Sæmundsson 1931. Nýjungar úr dýraríki Íslands. Skýrsla um Hið ísl. náttúrufræðisfélag 1929–30: 32–39.
Erling Ólafsson 1993. Athyglisverð skordýr: Garðaklaufhali. Náttúrufræðingurinn 63: 158.
Tuxen, S.L. 1938. Orthoptera and Dermaptera. Zoology of Iceland III, Part 38. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 5 bls.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009; endurskoðað 23. október 2011
Allir klaufhalar | Allar pöddur | Íslenska fánan



