Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Hvannabobbi - Vitrina pellucida (O.F. Müller, 1774)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda  Ættbálkur: Pulmonata  Ætt: Vitrinidae

Hvannabobbi - Vitrina pellucida

Hvannabobbi, 5 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Gjörvöll Evrópa nema allra syðst, M- og N-Asía, N-Ameríka; Grænland

Ísland
Láglendi um land allt, einnig fundinn víða á miðhálendinu, m.a. Þjórsárver, Vesturöræfi og Esjufjöll; hefur numið land í Surtsey.

Lífshættir
Hvannabobbi heldur sig á rökum stöðum, undir þéttum gróðri, í blómstóðum, t.d. hvannstóðum, í skógarbotnum á lækjarbökkum og víðast hvar þar sem raki viðhelst. Finnst einnig í görðum og öðru manngerðu umhverfi. Hann þolir illa hita og þurrk. Kulda þolir hann hins vegar vel og getur verið á ferli jafnt að vetri sem sumri. Hann sést einna helst niðri í gróðursverði, oft undir steinum, trjálurkum og öðru lauslegu. Ef til vill lifir hann einna helst á plöntuleifum og öðru rotnandi. Það er þó ekki fyllilega vitað.

Almennt
Hvannabobbi er án efa algengastur og útbreiddastur landsnigla hérlendis og finnst allt frá sjávarströndum inn til lands og fjalla í yfir 600 m hæð. Skelin er nær glær eða gagnsæ gulgræn til gulbrún, glansandi sem gler, þunn en samt nokkuð sterk. Vindingar eru 3-3½ og strýtan tiltölulega flöt. Snigillinn er blágrár til fjólugrár, hornin oft nokkuð dekkri en bolurinn.

Heimildir

Árni Einarsson 1977. Íslenskir landkuðungar. Náttúrufræðingurinn 47: 65–128.

Böcher, J.  2001. Insekter og andre smådyr – i Grönlands fjeld oh ferskvand. Forlaget Atuagkat, Nuuk. 302 bls.

Erling Ólafsson 2000. Landliðdýr í Þjórsárverum. Rannsóknir 1972–1973. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 40. 159 bls.

Erling Ólafsson & María Ingimarsdóttir 2009. The land-invertebrate fauna of Surtsey during 2002–2006. Surtsey Research 12: 113–128.

Mandahl-Barth, G. 1938. Land and Freshwater Mollusca. Zoology of Iceland IV, Part 65. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 31 bls.

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

©Erling Ólafsson, 22. september 2010.

 

Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan



 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Flokkun > Sniglar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun
    • Kögurskottur
    • Stökkskottur
    • Steinflugur
    • Beinvængjur
    • Klaufhalar
    • Kakkalakkar
    • Ryklýs
    • Skortítur
    • Netvængjur
    • Vorflugur
    • Fiðrildi
    • Bjöllur
    • Æðvængjur
    • Tvívængjur
    • Hvítfætlur
    • Margfætlur
    • Þúsundfætlur
    • Köngulær
    • Langfætlur
    • Sporðdrekar
    • Drekar
    • Mítlar
    • Krabbadýr
    • Sniglar
    • Ánar

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica