Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Ertuyglu (Melanchra pisi), átvagl í náttúrunni. © Erling Ólafsson

Trjákeppur - Otiorhynchus singularis (Linnaeus, 1767)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Curculionidae

Trjákeppur - Otiorhynchus singularis

Trjákeppur. 7 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa nema allra syðst; Færeyjar; innfluttur til N-Ameríku.

Ísland
Suðvesturland á höfuðborgarsvæðinu, í Keflavík og Hveragerði, einnig í Skagafirði.

Lífshættir
Trjákeppur finnst hér eingöngu í húsagörðum, einkum í gamalgrónum hverfum með gömlum trjám. Hann er fjölhæfur í fæðuvali, nagar brumknappa, börk og blöð eða barr á margskonar lauf- og barrtrjám, en getur einnig lagst á lágvaxnari plöntur. Ef hann fer á kreik í hlýindum að vetrarlagi nagar hann gjarnan fallin laufblöð. Bjöllurnar eru á ferli frá því snemma á vorin og langt fram eftir hausti og hafa fundist lifandi í desember, janúar og febrúar. Þær athafna sig fyrst og fremst á nóttinni. Trjákeppur getur skaðað trjágróður sérstaklega með því að naga brum. Hann verpir í fyrri hluta sumars, lirfurnar naga rætur á ungum trjáplöntum og leggjast í vetrardvala. Þær púpa sig á vorin. Bjöllurnar eru langlífar og geta lifað í allt að þrjú ár.

Almennt
Trjákeppur fannst fyrst hérlendis í Reykjavík 1968 og varð smám saman mjög algengur á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur dreifst hægt út á landsbyggðina, fannst þó í Skagafirði 1981, síðan í Hveragerði 1988 og Keflavík 2008. Hvergi er meira af trjákepp en í hverfum þar sem elstu greni- og reyniviðartré vaxa, t.d. í Þingholtunum í Reykjavík. Þar sem trén vaxa upp með húsveggjum fara trjákeppirnir oft yfir á veggina og slæðast þá stundum inn um opna glugga jafnvel á efstu hæðum húsa. Þó er algengara að þeir þvælist inn um glugga og glufur á jarðhæðum og inn með óþéttum dyrakörmum og þröskuldum á niðurgröfnum kjöllurum. Þrátt fyrir þessa áráttu eiga þeir ekkert erindi inn fyrir húsdyr og drepast þar fljótlega. Stundum safnast þeir fyrir í miklum fjölda á gólfum í kjöllurum þar sem umgengni er lítil og vekja með því grunsemdir um að vandamál sé í gangi. Svo er þó engan veginn og er ekkert að óttast.

Heimildir

Palm, E. 1996. Nordeuropas Snudebiller. 1. De kortsnudede arter (Coleoptera: Curculionidae) – med særlig henblik på den danske fauna. Danmarks Dyreliv 7. Apollo Books, Stenstrup. 356 bls.

©Erling Ólafsson, 27. janúar 2010


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica