Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Asparglytta - Phratora vitellinae (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Coleoptera Ætt: Chrysomelidae

Asparglytta - Phratora vitellinae

Asparglytta. 5 mm. ©EÓAsparglytta - Phratora vitellinaeAsparglytta. 5 mm. ©EÓ

Asparglytta - Phratora vitellinaeAsparglytta, lirfa. 6 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Norðurhvel; mestöll Evrópa en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir um aðrar álfur.

Ísland
Suðvesturland; Reykjavík, Mosfellsbær, Kollafjörður.

Lífshættir
Asparglytta finnst í skógum og görðum með þéttvöxnum öspum (Populus) og víðitrjám (Salix). Fullorðnar bjöllur vakna af vetrardvala upp úr miðjum apríl og safnast saman á stofnum og greinum aspa og víðitrjáa. Þær ná mestum fjölda í júní og taka strax til við að éta laufblöðin þegar brum opnast. Þær kjósa ný blöð á greinaendum. Eftir að bjöllurnar hafa byggt sig upp í um vikutíma fer mökun fram og viku síðar fara kvendýrin að verpa á þroskaðri laufblöðin sem lirfurnar nýta. Samkeppni um fæðu er því lítil á milli lirfa og bjallna og hýsilplantan vel nýtt. Lirfurnar raða sér gjarnan saman hlið við hlið, skríða áfram í hersingu og spæna í sig mjúka vefi laufblaðsins. Þær vaxa upp á tveim til þrem vikum, láta sig síðan falla til jarðar og púpa sig eftir nokkra daga í hulstri sem þær byggja um sig. Púpustigið varir í um átta daga. Ný kynslóð bjallna klekst. Í Evrópu geta þrjár kynslóðir þroskast yfir sumarið. Ekki er kunnugt um fjölda kynslóða hér á landi, en fullorðnar bjöllur finnast á ferli allt sumarið og fram yfir miðjan október. Þá leggjast þær í dvala, gjarnan undir trjáberki eða hvar sem skjól er að finna. Lirfurnar verða sér úti um vörn gegn rán- og sníkjudýrum með því að taka til sín sykrur úr fæðuplöntunni (einkum salicin og salicortin) og umbreyta þeim í salicylaldehyð sem er eitrað. Efnið á skylt við aspirín.

Almennt
Asparglytta er nýlegur landnemi á Íslandi sem fannst fyrst með vissu í ágúst 2005 í trjárækt Skógræktar ríkisins að Mógilsá í Kollafirði. Sumarið eftir hafði henni fjölgað mjög og óheyrilega 2007 svo stórsá á trjágróðri. Mikill skaði varð á alaskaösp (P. trichocarpa) og ýmsum  tegundum víðis. Sama sumar fannst tegundin í Mosfellsbæ og austast í Reykjavík ári síðar. Hér er því á ferðinni nýtt meindýr sem mun að væntanlega leggja undir sig garða á höfuðborgarsvæðinu og víðar á næstu árum og gæti orðið alvarleg meinsemd á öspum og víði. Asparglytta er vinsælt rannsóknarefni evrópskra fræðimanna.

Heimildir

Urban, J. 2006. Occurrence, development and economic importance of Phratora (= Phyllodecta) vitellinae (L.) (Coleoptera, Chrysomelidae). J. For. Sci. 52: 357–385.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar bjöllur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica