Ánabokka - Pollenia rudis (Fabricius, 1794)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Diptera Ætt: Calliphoridae
![]() |
|
Ánabokka. 8 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Víða um heim. Evrópa til N-Skandinavíu (þó ekki allra nyrst), austur til Ísraels og N-Indlands, suður til N-Afríku; Kanada og USA stranda á milli, Hawaii, Nýja-Sjáland.
Ísland
Suðvesturland; Hafnarfjörður, Garðabær, Reykjavík, Kollafjörður, Miðfell við Þingvallavatn, Fljótshlíð.
Lífshættir
Flugurnar eru á ferli allt árið þar sem veðurguðir lofa, en á Norðurlöndum er fjöldi þeirra mestur í apríl og júlí. Hérlendis hefur tegundin fundist frá miðjum apríl fram í miðjan nóvember. Þó ánabokka sé mjög algeng í Evrópu er tiltölulega lítið vitað um lífshættina annað en það að hún hefur verið ræktuð úr ánamöðkum, einnig úr fiðrildalirfu í Marokkó.
Almennt
Ánabokka fannst fyrst í húsagarði í Hafnarfirði í september 2002, er hún kom í ljósgildru til fiðrildaveiða. Á næstu árum fannst hún þrívegis aftur í sama garði. Í maí 2009 fannst hún svo á nýjum stað í Hafnarfirði, við Hamarskotslæk. Ánabokka sást í garði í Smáíbúðahverfi í Reykjavík 2006 en sú náðist ekki því til staðfestingar. Hins vegar náðist hún í Reykjavík vorið 2011 og í Garðabæ þá um haustið. Ánabokka hefur náð að dreifast út fyrir höfuðborgarsvæðið. Hún kom í ljósgildru á Mógilsá í Kollafirði haustið 2008 og aftur á sama tíma að ári. Næst fannst tegundin við sumarhús við Þingvallavatn á miðju sumri 2010 og síðast í Fljótshlíð í byrjun september 2011. Sennilega hefur ánabokka numið hér land í kringum aldamótin 1999/2000 og á eflaust eftir að ná sér á strik í görðum á höfuðborgarsvæðinu og víðar þar sem ánamaðkar eru henni aðgengilegir.
Ánabokka er mun smávaxnari en aðrar maðkaflugur en líkist þeim vissulega að sköpulagi. Hún þekkist auðveldlega á því að frambolurinn er alsettur löngum, fínum, gulum hárum.
Heimildir
Rognes, K. 1991. Blowflies (Diptera, Calliphoridae) of Fennoscandia and Denmark. Fauna Entomologica Scandinavica 24. E.J. Brill/Scandinavian Science Press Ltd., Leiden. 272 bls.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009; uppfært 27. janúarr 2012.
Allar tvívængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan


