Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Folafluga - Tipula paludosa (Meigen, 1830)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Diptera Ætt: Tipulidae

Folafluga - Tipula paludosa

Folafluga. 25 mm (bolurinn). ©EÓFolafluga - Tipula paludosaFolafluga, lirfur. 27 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa frá norðri, austur til Rússlands, suður á Balkanskaga og þar yfir til N-Afríku. Innflutt til N-Ameríku, bæði Bandaríkjanna og Kanada.

Ísland
Suður- og Suðvesturland; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kollafjörður, Ölfus, Fljótshlíð.

Lífshættir
Folafluga hefur fundist í gróðurstöðvum, gróðurríkum görðum og trjárækt. Lirfur eru í rökum jarðvegi og gróðursverði. Fæðuval þeirra er fjölbreytt; grös, skrautjurtir, grænmeti og rótarávextir, einnig græðlingar trjáa og runna. Fullorðnar flugur sjást síðsumars, frá lokum júlí og fram í byrjun september. Lirfur taka þá að vaxa, leggjast í vetrardvala, halda síðan vexti áfram að vetri liðnum og púpa sig þegar fullum vexti er náð á miðju sumri.

Almennt
Folafluga er nýlegur landnemi hér á landi. Hún varð fyrst staðfest í Hveragerði sumarið 2001 en heimafólk varð hennar vart nokkru fyrr. Folaflugu fjölgaði hratt við kjörin skilyrðin í Hveragerði, þar sem jörð er ylvolg og rök og gróskan annáluð utan sem innan gróðurstöðva. Hún tók fljótlega að sjást víðar í Ölfusi. Sumarið 2005 fannst hún einnig hjá Skógrækt ríkisins að Mógilsá í Kollafirði og svo í Húsahverfi í Reykjavík 2010. Ári síðar (2011) fannst tegundin svo við Laugardalinn og ennfremur í nágrenni Hamarskotslækjar í Hafnarfirði. Þar fannst hún fyrst um miðjan júlí og alloft í ágúst og fram í byrjun september. Þetta sama sumar hafði hún einnig náð austur í Fljótshlíð. Folafluga hefur því náð að festa sig tryggilega í sessi.

Það er ekki ástæða til að fagna þessum nýliða í smádýrafánunni, því ólíkt nánustu ættingjum er um skaðvald að ræða, sem getur látið að sér kveða þar sem margar lirfur alast upp. Það er kunnugt vandamál erlendis, að lirfur nagi börk græðlinga í ræktunarreitum niðri við rót þannig að þeim blæðir út og þeir falla.

Folafluga er mun stærri en aðrar hrossaflugur hér á landi og því auðþekkt frá þeim hinum. Auk þess hefur hún fölleitan grágulan afturbol. Karlflugur eru mun fótalengri en kvenflugurnar en á þeim síðarnefndu er afturbolur áberandi lengri.

Heimildir

Distribution Maps of Plant Pests 1977. Tipula paludosa. http://www.cabi.org/dmpp/default.aspx?LoadModule=Review&ReviewID=12984&site=164&page=1155 [skoðað 7.8.2009].

Discover life 2007. Tipula paludosa. http://www.discoverlife.org/mp/20q?search=Tipula+paludosa [skoðað 7.8.2009].

Lísa Anne Libungan 2006. Vistfræði varmasmiðs (Carabus nemoralis) og folaflugu (Tipula paludosa). Lísa Anne Libungan, Gísli Már Gíslason & Tryggvi Þórðarson 2009. Folafluga – nýtt skordýr á Íslandi. Náttúrufræðingurinn 77: 107–112.

Háskóli Íslands, Raunvísindadeild – Líffræðiskor. B.Sc. verkefni. 28 bls.

Blackshaw, R.P. & C. Coll. 1999. Economically important leatherjackets og grassland and cereals: biology, impact and control. Integrated Pest Management Reviews 4: 143–160.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009; uppfært 21. janúar 2012


Allar tvívængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica