Roðageitungur - Vespula rufa (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hymenoptera Ætt: Vespidae

Roðageitungur - Vespula rufa

Roðageitungur, þerna. 14 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Frá V-Evrópu austur um Litlu-Asíu, Rússland, norður til Kólaskaga og suður til Volgograd, austur eftir Síberíu allt til Kyrrahafs; Mongólía, NA-Kína, Kórea og Japan. Norðanverð N-Ameríka, frá Nýfundnalandi vestur til Alaska. Í Evrópu allt norður til 69°N, algengari í norðri en suðri.

Ísland
Höfuðborgarsvæðið (Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður).

Lífshættir
Roðageitungur velur búum stað í holum í jörð, á bak við steina og í vegghleðslum í húsagörðum svo dæmi séu tekin. Heldur lítið er enn vitað um lífshætti hans hérlendis þar sem fá bú hafa fundist og verið rannsökuð. Bú hafa verið tekin á tímabilinu 9.7.–29.8. Í stærsta búinu, sem tekið var 11. ágúst, voru 224 geitungar (13 drottningar, 106 þernur og 105 karlar). Svo margar nýjar drottningar og karlar á þessum tíma sumars sýna að roðageitungur þarf ekki langan tíma til að geta af sér nýliðun til að erfa landið að ári. Möguleikar hans ættu því að vera þokkalegir til varanlegrar búsetu í landi þar sem ekki er boðið upp á langt sumar, enda er tegundin með tiltölulega norðlæga útbreiðslu. Fleiri bú sem skoðuð hafa verið benda til þess sama og það auki að bú roðageitungs verði ekki fjölliðuð hérlendis.

Almennt
Roðageitungur nam hér land síðastur fjögurra tegunda geitunga. Í september 1986 komu þernur inn í hús í Hafnarfirði og áttu án efa uppruna að rekja til bús í nágrenninu. Bú fannst þó ekki fyrr en 1997 í Kópavogi, ári síðar í Garðabæ og svo 1999 í Reykjavík. Síðan hafa nokkur bú fundist í Reykjavík og Hafnarfirði. Roðageitungur þraukar því hér á landi en virðist ekki eiga auðvelt uppdráttar. Tegundin er harðger og kann því að eiga ágæta framtíð fyrir sér. Hann er óneitanlega fallegt skordýr með sitt litaskrúð og þekkist frá öðrum geitungum á rauðum lit á afturbol framanverðum.

Heimildir

Akre, R.D., A. Greene, J.F. MacDonald, P.J. Landholt, & H.G. Davis 1981. Yellowjackets of North America, North of Mexico. U.S. Department of Agriculture, Washington, D.C. Handbook #552.

Dubatolov, V.V. Vespula rufa (Linnaeus, 1758). http://fen.nsu.ru/~vvdubat/Vespidae/rufa.htm [skoðað 7.8.2009].

Edwards, R. 1980. Social wasps. Their biology and control. Rentokil Ltd, Felcourt.398 bls.

Erling Ólafsson 2002. Stungur geitunga. Náttúrufræðingurinn 70: 197–204.

Erling Ólafsson 2008. Geitungar á Íslandi. Námsgagnastofnun, Reykjavík. 24 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar æðvængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan



Til baka, , Prenta greinina

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: