Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skemmukönguló (Tegenaria atrica ), nýr landnemi í birgðageymslum. © Erling Ólafsson

Fíflalús - Uroleucon taraxaci (Kaltenbach, 1843)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hemiptera Ætt: Aphididae

Fíflalús - Uroleucon taraxaci

Fíflalýs, vænguð og óvængjuð. 2,5 mm ©EÓFíflalús - Uroleucon taraxaciFíflalús, vængjuð. 2,5 mm ©EÓ

[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Norðurhvel. Evrópa til N-Skandinavíu, Bretlandseyjar, N-, M- og A-Asía, N-Ameríka.

Ísland
Höfuðborgarsvæðið frá Hafnarfirði norður á Kjalarnes, einnig Grindavík, Akranes og Höfn í Hornafirði.

Lífshættir
Fíflalús lifir á túnfíflum (Taraxacum) og hefur fundist í húsagörðum og í skógrækt að Mógilsá í Kollafirði. Hún heldur sig einkum á neðra borði laufblaðanna og við blaðgrunn. Henni fjölgar gríðarlega síðsumars og skríður þá meira upp í gróðurinn og af honum upp húsveggi og skjólgarða.

Almennt
Fíflalús er nýlegur landnemi hér á landi. Ekki er ljóst hvenær hún mætti til leiks en nokkru upp úr aldamótunum tók henni að fjölga svo ótæpilega í görðum höfuðborgarbúa að eftir henni var aldeilis tekið. Elstu sýni sem varðveitt eru í safni Náttúrufræðistofnunar Íslands frá Reykjavík þar sem tegundin fannst fyrst eru frá síðsumrinu 2007 en hún var þó farin að láta á sér bera einhverjum sumrum fyrr. Sýni bárust frá Grindavík 2009 og Akranesi og Höfn í Hornafirði 2010, þannig að fíflalús er í hraðri útbreiðslu.

Fíflalús er með stærstu blaðlúsum, auk þess óvenju dökk á lit, ekki græn eins og flestar aðrar blaðlýs. Það athæfi hennar að flæða í fylkingum upp húsveggi síðsumars, frá miðjum ágúst og fram eftir september, og yfir flest sem fyrir verður, jafnvel inn um opna glugga, hefur reynst illa þokkað af garðeigendum. Þegar reynt er að þurrka lýsnar burt springa þær og skilja eftir sig rauðleitar klessur og eru því stundum grunaðar um að sjúga blóð af þeim sem ekki til þekkja. Mest er um fíflalýs í óræktargörðum þar sem túnfíflar fá að fara sínu fram.

Heimildir

Heie, O.E. 1995. The Aphidoidea (Hemiptera) of Fennoscandia and Denmark. VI. Family Aphididae: Part 3 of tribe Macrosiphini of subfamily Aphidinae, and family Lachinidae. Fauna Entomologica Scandinavica 31. E.J. Brill, Leiden, New York, Köln. 217 bls.

 

©Erling Ólafsson, 27. ágúst 2010.


Allar skortítur | Allar pöddur | Íslenska fánan 



 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica