Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Rauðhumla - Bombus hypnorum (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hymenoptera Ætt: Apidae

Rauðhumla - Bombus hypnorum

Rauðhumla, drottning (Reykjavík 2009), 17 mm. ©EÓRauðhumla - Bombus hypnorumRauðhumla, drottning (Hafnarfjörður 2010), 17 mm. ©EÓRauðhumla - Bombus hypnorum

Rauðhumlur, drottningar (Hafnarfjörður 2010), 17 mm. ©EÓ

[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa og Asía, frá Miðjarðarhafi til N-Noregs, austur um barrskóga- og laufskógabelti Síberíu til Kyrrahafs, Kurileyja, Sahkalin og Japans, suður til Himalaya.

Ísland
Þrír fundarstaðir á Suðvesturlandi; Keflavík, Hafnarfjörður, Reykjavík.

Lífshættir
Húsagarðar með fjölbreyttum gróðri blómplantna og blómstrandi runna eru kjörlendi rauðhumlu sem velur búum sínum stað í holrýmum í húsveggjum og undir gólffjölum eða öðrum afdrepum í nábýli við manninn, einnig í hreiðurkössum og svöluhreiðrum eða í holum trjám sem á þó varla við hér á landi. Villt íslensk náttúra hentar rauðhumlu ekki þar sem hvorki gróðurfar né bústaðir eru við hæfi. Búin eru tiltölulega fjölliðuð. Í Noregi fljúga drottningar frá lokum mars og fram eftir september er ný kynslóð þeirra leggst í vetrardvala. Þernur sjást frá lokum apríl til fyrri hluta september en karldýr frá seinni hluta júní og til loka september.

Almennt
Rauðhumla fannst hér fyrst í Keflavík 19. ágúst 2008. Var þar um drottningu að ræða og var eintakinu komið til Náttúrustofu Reykjaness í Sandgerði. Það er nú varðveitt í safni  Náttúrufræðistofnunar Íslands. Talið var líklegt að um tilfallandi slæðing hafi verið að ræða sem hefði borist til Keflavíkur með skipi eða varningi. Ári síðar, 10. ágúst 2009, flaug önnur drottning inn í hús í vesturbæ Reykjavíkur. Vorið 2010 fór að bera nokkuð á humlum með ryðrauðan frambol, tilkynningar bárust nokkuð víða að, og var um hríð talið að þar væru rauðhumlur á ferð. Þá kom hins vegar í ljós að tegundirnar voru tvær, þ.e. rauðhumla og ryðhumla (B. pascuorum). Rauðhumla var í maí 2010 aftur staðfest frá Keflavík og auk þess frá Hafnarfirði.

Ýmsar humlutegundir hafa átt í vök að verjast í Evrópu vegna framþróunar byggðar og þar af leiðandi undanhalds villtrar náttúru. Það á hins vegar ekki við um rauðhumlu sem hefur notið góðs af aukningu byggðar og ræktunar garða henni samfara í Evrópu á 20. öld. Þar hefur hún auk þess verið að leggja undir sig nýjar lendur á seinni árum og t.d. numið land á Bretlandseyjum þar sem hún var óþekkt til ársins 2001. Þar fjölgar tegundinni frá ári til árs og er gert ráð fyrir að hún geti auðveldlega dreifst um gjörvallt ríkið.

Ætla má að rauðhumlu bíði björt framtíð hér á Íslandi og er ekki ástæða til annars en að taka henni fagnandi. Hún kann e.t.v. að veita öðrum innfluttum humlum nokkra samkeppni um blómasafann en það er varla áhyggjuefni. Eins og aðrar humlur ber rauðhumla frjókorn á milli blóma ötullega metnaðarfullum garðræktendum til yndisauka. Án efa hefur rauðhumla borist til landsins með varningi.

Rauðhumla er heldur smávaxnari en húshumla (B. lucorum) en öllu stærri en okkar gamalgróna móhumla (B. jonellus). Tegundirnar þrjár sem fyrir voru á landinu eru allar gul- og svartröndóttar með hvítan afturenda. Rauðhumla er frábrugðin. Hún er svört á lit nema hvað bakið á frambol er áberandi einlitt ryðrautt. Afturendinn er eftir sem áður hvítur eins og á röndóttu humlunum þrem.

Heimildir

Ahrné, K., J. Bengtsson & T Elmquist 2009. Bumble Bees (Bombus spp) along Gradient of Increasing Urbanization. PLoS ONE 4(5): e5574. doi: 10.1371/journal.pone.0005574.

BWARS - Bee, Wasps and Ants Recording Society 2010. Hymettus. Information Sheet. Tree Bee (Bombus hypnorum) http://www.bwars.com/Files%204%20downloading/
Bombus_hypnorum_infosheet.pdf
[skoðað 31.5.2010]

Goulson, D. & P. Williams 2001. Bombus hypnorum (Hymenoptera: Apidae), a new British bumblebee? Br. J. Ent. Nat. Hist. 14: 129–131.

Løken, A. 1973. Studies on Scandinavian Bumble Bees (Hymenoptera, Apidae). Norsk ent. Tidsskr. 20: 1–218.

Proshchalykin, M.Yu. 2004. A check list of the bees (Hymenoptera, Apoidea) of the southern part of the Russian Far East. Far Eastern Entomologist nr. 143:1–17.

©Erling Ólafsson, 19. maí 2010; uppfært 1. júní 2010.

 

Allar æðvængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan



 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica