Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Ryðhumla - Bombus pascuorum (Scopoli, 1763)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hymenoptera  Ætt: Apidae

Ryðhumla - Bombus pascuorum

Ryðhumla, drottning (Hveragerði 2010), 17 mm. ©EÓ [Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Gjörvöll Evrópa til nyrstu héraða og ósamfelld útbreiðsla austur eftir Asíu, sunnan til í Síberíu vestanverðri og austur í Yakutsk; Tyrkland, Íran, Kazakhstan, Kína.

Ísland
Tveir fundarstaðir, Hveragerði og Akureyri.

Lífshættir
Kjörlendi ryðhumlu hérlendis er væntanlega ómótað enn sem komið er. Hún hefur nú fundist í görðum og ræktunarstöðvum í Hveragerði og á ræktuðu útivistarsvæði í Kjarnaskógi við Akureyri. Líkast til mun hún kjósa þess háttar aðstæður til að byrja með, þ.e. undir áhrifum byggðar, einkum ræktuðum í görðum plöntum og runnum gjöfulum á blómasafa. Toppar af ættkvíslinni Lonicera hafa aðdráttarafl. Ryðhumla gerir sér ekki bú í holum í jörðu heldur á yfirborðinu, t.d. í grasi og mosa, svo og í sprekahrúgum og rotnandi trjádrumbastöflum. Búin eru tiltölulega fáliðuð og hýsa í mesta lagi um 100 þernur. Í Noregi fljúga drottningar frá miðjum apríl og fram í miðjan október er ný kynslóð leggst í vetrardvala. Þernur sjást frá fyrri hluta maí og fram í október en karldýr frá seinni hluta júní og einnig fram í október.

Almennt
Humludrottning fannst í ræktunarstöð í Hveragerði 17. maí 2010 og var þá talið að um  rauðhumlu (Bombus hypnorum) væri að ræða sem einnig er nýr landnemi. Það vakti reyndar athygli að þessi drottning var frábrugðin þekktum rauðhumlum að því leyti að afturendinn var ryðrauður eins og frambolurinn en ekki hvítur eins og á hefðbundnum rauðhumlum. Að öðru leyti var litmynstrið það sama, þ.e. ryðrauður frambolur og biksvartur afturbolur framan við ryðrauða afturendann. Mynd af þessari humlu vakti athygli erlendra býfræðinga sem bentu á að sennilega væri um að ræða dökkt litarafbrigði ryðhumlu. Slík afbrigði finnast í vestanverðum Noregi og norðanverðri Skandinavíu, sbr. undirtegundirnar sparreanus og bicolor. Annars eru ryðhumlur ryðrauðar yfir allan bolinn, þó oftast dekkri og með svörtu háraívafi framan til á afturbol. Við smásjárskoðun komu svo í ljós ýmis smáatriði sem aðskildu þetta eintak frá Hveragerði greinilega frá öðrum rauðhumlum.

Við þessi tíðindi var grennslast frekar fyrir um stöðu tegundarinnar og kom þá í ljós að hún var orðin allalgeng í görðum í Hveragerði hefu hefur sést þar um nokkurra ára bil. Auk þess barst tilkynning um rauðar humlur í Kjarnaskógi sunnan Akureyrar. Eintök voru sótt þangað til frekari skoðunar 27. maí og reyndist um ryðhumlur að ræða.

Heimildir

Løken, A. 1973. Studies on Scandinavian Bumble Bees (Hymenoptera, Apidae). Norsk ent. Tidsskr. 20: 1–218.

 

©Erling Ólafsson, 1. júní 2010.

 

Allar æðvængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan


 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica