Blaðfluga - Lyciella rorida (Fallén, 1820)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Diptera Ætt: Lauxaniidae
![]() |
|
Blaðfluga, 5 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka] |
Útbreiðsla
Gjörvöll Evrópa og vestanverð Asía, N-Ameríka.
Ísland
Fundin frá höfuðborgarsvæðinu norður að Esjurótum og Hvanneyri í Borgarfirði, austur um Suðurlandsundirlendið til Skóga undir Eyjafjöllum
Lífshættir
Blaðfluga heldur sig fyrst og fremst í skuggsælu gróðurþykkni í görðum og byggð eða á öðrum áhrifasvæðum okkar manna, s.s. trjárækt með ríkulegum undirgróðri og í lúpínubreiðum. Flugurnar eru oftast lítt áberandi og hafa hægt um sig inni í þykkninu en þyrlast upp ef styggð kemur að. Þær nærast á sveppþráðum á laufblöðum en leita aldrei í blóm. Blaðfluga þolir kulda ágætlega og kemur helst út úr fylgsnum sínum á svölum síðsumarkvöldum. Þá geta flugurnar gulu laðast að ljósi innan við opna glugga. Flugurnar fara að sjást í júní, eru algengastar síðsumars og á ferli langt fram á haustið. Lirfurnar lifa á rotnandi plöntuleifum í jarðvegi og safnhaugum svo og á gerlum og sveppþráðum í rotmassanum. Enginn skaði er af blaðflugum.
Almennt
Blaðflugan er nýlegur landnemi hér á landi. Hún fannst fyrst árið 2001 á takmörkuðu svæði í Suðurhlíðunum í Reykjavík, í nágrenni Fossvogskirkjugarðs. Á næstu árum fjölgaði henni hratt og útbreiðslusvæðið stækkaði með hverju árinu. Má nú ganga að henni vísri hvarvetna á Suðurlandsundirlendi þar sem álitleg gróðurþykkni finnast, allt austur undir Eyjafjöll. Hún fannst fyrst í Borgarfirði 2010.
Blaðfluga er einlit gul á lit og því áberandi þegar hana ber fyrir augu. Hún þykir óvenjuleg og vakti því fljótlega athygli þegar henni tók að fjölga í görðum höfuðborgarbúa. Gulsprekla (Toxoneura trimacula) er þó áþekk, einnig gul á lit en með flekkótta vængi, ekki einlita glæra eins og blaðflugan. Á kyrrum kvöldum má sjá blaðflugur sitjandi á húsveggjum, gjarnan í kringum útiljós og á upplýstum gluggum. Blaðfluga er meinlaus landnemi sem á bjarta framtíð fyrir sér í gróskumiklum görðum okkar.
Heimildir
Fauna Europea. Lyciella rorida http://www.faunaeur.org/full_results.php?id=62088. [skoðað 25.8.2010]
Wikipedia: http://no.wikipedia.org/wiki/L%C3%B8vfluer. [skoðað 25.8.2010]
©Erling Ólafsson, 25. ágúst 2010; uppfært 27. ágúst 2010.
Allar tvívængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan

