Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Gljáfætla - Allajulus nitidus (Verhoeff, 1891)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Diplopoda  Ættbálkur: Juliformia  Ætt: Julidae

Gljáfætla - Allajulus nitidus

Gljáfætla, 19 mm. ©EÓ [Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Mið- og Norður-Evrópa, norður til sunnanverðs Noregs, sunnan- og austanverðrar Svíþjóðar, suður til Frakklands, Sviss og Tékklands; Bretlandseyjar.

Ísland
Höfuðborgarsvæðið; Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Hafnarfjörður.

Lífshættir
Hérlendis hefur gljáfætla eingöngu fundist í húsagörðum á höfuðborgarsvæðinu. Í nágrannalöndunum er hún laufskógategund sem þrífst vel í manngerðu umhverfi, svo sem húsagörðum, skrúðgörðum og kirkjugörðum. Heldur sig í rotnandi laufi, undir steinum og lurkum, jafnvel nokkuð niðurgrafin í svörðinn. Lifir á rotnandi plöntuleifum. Gljáfætla hefur einungis fundist hér að haustlagi, á tímabilinu frá lokum ágúst og fram eftir september. Þá birtast þær stunum í nokkrum fjölda á stéttum í görðunum.

Almennt
Gljáfætla fannst hér fyrst í Reykjavík haustið 1993 og hefur fundist nokkrum sinnum síðan. Að öllum líkindum er hún nýlegur landnemi sem borist hefur til landsins með innfluttum gróðurvörum. Hún virðist eiga framtíð fyrir sér í görðum okkar.

Gljáfætla er meðalstór þúsundfætla, sívöl með gljáandi skel og skríður áfram á fjöldanum öllum af stuttum fótum sem bærast undir bolnum með bylgjuhreyfingum. Á hliðunum má greina var röð af dökkum dílum en þeir eru kirtlar sem seyta eitri dýrunum til varnar. Þeir sjást ekki á fremstu liðum og eru óskýrir aftast. Bolurinn er dekkri á baki en hliðum og dekkri spangir tengja kirtilblettina yfir bakið. Baklægt á næstaftasta lið skagar oddmjótt hak aftur úr bolnum.

Heimildir

Andersson, G., B.A. Meidell, U. Scheller, J.-Å. Winqvist, M. Osterkamp Madsen, P. Djursvoll, G. Budd & U. Gärdenfors 2005. Nationalnyckeln till Sveriges flora och fauna. Mångfotingar. Myriapoda. Artdatabanken, SLU, Uppsala. 351 bls.

©Erling Ólafsson, 29. september 2010.


Allar þúsundfætlur | Allar pöddur | Íslenska fánan


 

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica