Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Garðhumla - Bombus hortorum (Linnaeus, 1761)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hymenoptera Ætt: Apidae

Garðhumla - Bombus hortorum

Garðhumla, drottning. 20 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa og Asía norðan fjallgarða Himalaya og Tíbets, N-Afríka, Arabía. Innflutt til Nýja-Sjálands.

Ísland
Landnemi á 6. áratug 20. aldar sem dreifðist út frá höfuðborginni og náði mestri útbreiðslu um og upp úr 1980, allt vestur til Stykkishólms og austur í Landeyjar. Þá fór útbreiðslan að dragast saman og hefur eftir aldamótin aðeins fundist í Keflavík, á Stokkseyri og Þingvöllum.

Lífshættir
Garðhumla heldur sig einvörðungu við mannabyggð, í þéttbýli eða við sumarbústaði þar sem útlendar plöntur sem henni henta eru ræktaðar. Hún hefur mjög langa tungu sem gerir hana háða djúpum blómum, hefur t.d. dálæti á sporasóleyjum (Aquilegia). Drottningar vakna af vetrardvala um mánaðamót apríl/maí og sækja frjókorn og safa í víðirekla á fyrsta skeiðinu. Garðhumla er samfélagsskordýr sem stofnar til bús. Lítið er vitað um þroskaferil búanna, en fyrstu drottningar af haustkynslóð fara að sjást í seinni hluta ágúst og þær síðustu um miðjan október. Búin eru í jörð.

Almennt
Garðhumlu fór að vegna vel fljótlega eftir að hún barst til landsins og náði að festa sig í sessi. Sú fyrsta fannst í Reykjavík 1959 og fyrst utan Reykjavíkur í Hafnarfirði 1965. Árið 1980 kom í ljós stóraukin útbreiðsla, en það sumar fannst hún fyrst utan höfuðborgarsvæðisins, á Selfossi, Laugarvatni, Hvolsvelli og í Austur-Landeyjum, í Kjós, á Akranesi og í Stykkishólmi. Á næstu árum dróst útbreiðslan saman á ný og garðhumlum fækkaði svo mjög að í lok 9. áratugarins var tegundin orðin fágæt. Staða hennar varð óljós upp úr því og líkur voru jafnvel taldar á að hún hefði dáið út. Sú var þó ekki raunin því enn finnst hún af og til en á afar erfitt uppdráttar. Margt bendir til þess að orsök þessarar þróunar sé samkeppni við annan landnema, húshumlu (Bombus lucorum), sem fannst fyrst í Reykjavík og Heiðmörk 1979. Henni fjölgaði hratt og hún lagði undir sig landið á skömmum tíma. Húshumla afétur hina sérhæfðu garðhumlu með því að bíta göt á blómspora og tæma þá af blómasafanum. Garðhumla er stór og þótti í fyrstu uggvænleg. Hún var því ekki talin aufúsugestur á íslenskum heimilum þegar hún slæddist inn.

Heimildir

ARKive - Images of life on earth. Small garden bumble bee (Bombus hortorum) http://www.arkive.org/small-garden-bumblebee/bombus-hortorum/range-and-habitat.html [skoðað 7.8.2009].

Donovan, B.J. & P. Macfarlane 1971. A nest of Bombus hortorum (Hymenoptera) in a fur coat in New Zealand. N. Z. Entomol. 5: 83–84.

Prys-Jones, O.E., Erling Ólafsson & Kristján Kristjánsson 1981. The Icelandic Bumble bee fauna (Bombus Latr., Apidae) and its distributional ecology. Journal of Apicultural Research 20: 189–197.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar æðvængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í görðum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica