Garðalodda - Cylisticus convexus (De Geer, 1778)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Malacostraca Ættbálkur: Isopoda Ætt: Cylisticidae
![]() |
|
Garðalodda. 11 mm. ©EÓ |
Útbreiðsla
Mestöll Evrópa og Litla-Asía, vantar þó víða við Miðjarðarhaf, m.a. á Íberíuskaga. Innflutt til N-Afríku, Bandaríkjanna, Mexíkó og Argentínu.
Ísland
Höfuðborgarsvæðið (Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur og Hafnarfjörður); einnig Sauðárkrókur.
Lífshættir
Í húsagörðum, gjarnan með húsveggjum þar sem gróðursvörður liggur að, undir hellum, í laufbingjum og safnhaugum. Oft þar sem hita og raka gætir frá frárennslislögnum húsa og í húsgrunnum þar sem aðgangur er inn í þá. Kemur stundum inn í hús, inn um sprungur, með lögnum eða óþéttum dyrakörmum, en þar er ekki lífvænlegt til lengri tíma nema komist verði í raka og morkinn við, t.d. undir baðkerum og sturtubotnum. Garðalodda nærist á rotnandi plöntuleifum. Við styggð hringar hún sig upp sér til varnar.
Almennt
Garðalodda fannst fyrst í miðborg Reykjavíkur 1983 og upp frá því í görðum í Hlíðahverfi og Vogahverfi. Hún hefur sennilega borist til landsins eftir miðja 20. öld. Smám saman dreifðist hún enn frekar um höfuðborgarsvæðið og varð að lokum algeng í görðum þar. Árið 1995 fannst garðalodda á Sauðárkróki, þar sem hún kom upp um niðurfall í íþróttahúsinu.
Heimildir
Oliver, P.G. & C.J. Meechan 1993. Woodlice. Synopses of the British Fauna (New Series) 49. The Linnean Society of London. 135 bls.
©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009
Öll krabbadýr | Allar pöddur | Íslenska fánan


