Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Blökkumaur - Lasius niger (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hymenoptera Ætt: Formicidae

Blökkumaur - Lasius niger

Blökkumaur. 3 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Allt umhverfis norðurhvelið, frá N-Afríku norður til 64°N í Skandinavíu.

Ísland
Slæðingur frá 1994 og í flestum tilvikum tímabundinn landnemi. Reykjavík (1994, 1998, 1999, 2002 og árlega 2005–2009), Álftanes (2003, 2004), Borgarnes (2004), Vogar á Vatnsleysuströnd (2009).

Lífshættir
Blökkumaur er einn algengasti maurinn í Evrópu og er hvað mest um hann í tengslum við athafnasemi okkar manna. Hann finnst jafnt utanhúss sem innan og er gjarnan með bú sín í veggjum, húsgrunnum og holum trjábolum. Þeir finnast einnig í villtri náttúru. Búin eru mismunandi fjölliðuð, allt frá nokkur hundruð einstaklingum til um 10 þúsund. Maurarnir eru sólgnir í hunangsdögg frá blaðlúsum, þ.e. saur þeirra. Þeir makast síðsumars og eru þá stundum á ferli í gríðarlegum fjölda.

Almennt
Blökkumaurar hafa fundist af og til hér á landi síðan 1994 og árlega síðan 2002. Í flestum tilvikum hafa þeir reynst hafa komið sér upp búum í híbýlum og hefur stundum gengið treglega að úthýsa þeim. Í einu tilviki fundust maurarnir í stóru trékefli undan rafmagnskapli og í öðru tilviki voru þeir í og við gám sem stóð utan við verslun. Þeir höfðu e.t.v. borist til landsins með gámnum. Eitt tilvik er þekkt frá veitingastað í Reykjavík þar sem blökkumaurar hafa hafst við í það minnsta síðan 2006 og ekki gengið að uppræta þá. Að öllum líkindum er blökkumaur orðinn landlægur hér en þó háður því að hljóta húsaskjól hjá gestrisnum landsmönnum.

Heimildir

Collingwood, C.A. 1979. The Formicidae (Hymenoptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna entomologica scandinavica Vol. 8. Scandinavian Science Press Ltd., Klampenborg. 174 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Allar æðvængjur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica