Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Farmkakkalakki - Periplaneta americana (Linnaeus, 1758)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Dictyoptera Ætt: Blattidae

Ameríski kakkalakki - Periplaneta americana

Farmkakkalakki. 32 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Útbreiddur um heim allan, en upprunninn í hitabelti Afríku.

Ísland
Fundinn á allnokkrum stöðum, víðast hvar sem tilfallandi slæðingur; Reykjavík, Keflavíkurflugvöllur, Grindavík, Akranes, Stykkishólmur, Sauðárkrókur, Akureyri, Egilsstaðir, Eskifjörður.

Lífshættir
Farmkakkalakk lifir alfarið innanhúss sem afar hvimleitt meindýr og leggst á flest sem tönn á festir, spillir og óhreinkar. Þar má telja matvörur af öllu tagi, dauð dýr og plöntur, leður, lím, veggfóður, textílvörur og hvaðeina sterkjuríkt. Auk þess að éta og naga óhreinkar hann mikið með saur sínum og illum þef. Farmkakkalakkar makast 1–5 vikum eftir að fullorðinsstigi er náð. Egghulstur myndast utan um eggjamassa 3–7 dögum eftir mökun. Slík myndast með 4–12 daga millibili. Við kjörskilyrði (28°C) verður fjölgun gífurleg eins og glöggt greina þegar tölulegar staðreyndir eru skoðaðar. Tegundin er einnig ágætlega sátt við íslenskan stofuhita. Eftir að kynþroska er náð lifir farmkakkalakki a.m.k. 100 daga og jafnvel allt að 700 daga, kvendýr ívið lengur en karldýr. Hvert kvendýr framleiðir 10–84 egghulstur á æviskeiðinu sem hvert eitt inniheldur 14–16 egg. Venjulega skilar kvendýrið hulstri frá sér á innan við sólarhring, en það getur þó tekið nokkra daga. Við rúman stofuhita klekjast eggin á 58 dögum en mun skemur við hærri hita.

Almennt
Farmkakkalakki hefur einnig verið kallaður ameríski kakkalakkinn. Hann fannst hér nokkrum sinnum á fyrri hluta 20. aldar, fyrst 1915 og svo reglulega eftir miðja öldina. Hann varð þar með alltíður slæðingur með varningi til landsins og hefur sennilega náð fastri búsetu þó ekki sé hann algengur. Hitakröfur hans eru slíkar að kaldar vöruskemmur eru ólíklegar til að hýsa hann til langframa. Hann þarf því að finna sér aðsetur í upphituðu húsnæði. Tegund þessi var talin hafa verið föst í sessi á Keflavíkurflugvelli á meðan herstöðin var starfrækt þar með amerískum her.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Bjarni Sæmundsson 1931. Nýjungar úr dýraríki Íslands. Skýrsla um Hið ísl. náttúrufræðisfélag 1929–30: 32–39.

Geir Gígja 1934. Kakalakar (Blattoidea). Náttúrufræðingurinn 4: 75–80.

Tuxen, S.L. 1938. Orthoptera and Dermaptera. Zoology of Iceland III, Part 38. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 5 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009; uppfært 30. janúar 2012


Allir kakkalakkar | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica