Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Hnetuglæða - Plodia interpunctella (Scopoli, 1763)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Pyralidae

Hnetuglæða - Plodia interpunctella

Hnetuglæða. 9 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Finnst um heim allan en talin upprunnin í S-Ameríku.

Ísland
Í byggð á Suðvesturlandi, frá Reykjanesbæ austur á Skeið og Eyrarbakka, í Ólafsvík, Vatnsdal í Húnavatnssýslu, á Akureyri, Norðfirði og Djúpavogi.

Lífshættir
Hnetuglæða lifir hér alfarið innanhúss og eru fiðrildin á ferli allan ársins hring. Fiðrildin taka til við að verpa fáum dögum eftir að þau skríða úr púpum og verpa í allt að tvær vikur alls um 500 eggjum. Við stofuhita klekjast eggin á fáeinum dögum Lirfurnar nærast á grófri kornvöru af flestu tagi, hnetum, súkkulaði sem inniheldur hnetur, þurrkuðum ávöxtum, blönduðu korni ætluðu gæludýrum og flestu af slíku tagi. Þær spinna þræði í fæðunni sem því fer að loða saman. Þegar lirfurnar eru fullvaxnar yfirgefa þær kornmatinn og geta skriðið langa vegalengd í leit að hentugu skjóli til að púpa sig eftir að hafa spunnið um sig hvítt silkihýði. Þær leita gjarnan upp á við, t.d. upp undir loft í skápum og innréttingum þar sem sýkta kornið er geymt, upp veggi og koma sér fyrir á bak við muni sem hanga á vegg eða í kverkum við loft. Púpustigið tekur 12–43 daga. Hitastig ræður hversu hratt þroskinn gengur fyrir sig. Stystur er tíminn við 35°C en þá verða kynslóðaskipti á 35 dögum. Undir 18°C stöðvast þroskaferlið og öll stig drepast örugglega við -18°C.

Almennt
Hnetuglæða hefur einnig gengið undir heitinu hnetumölur. Hún finnst án efa í húsum víðar um land en tilgreint er hér að ofan því hún berst frjálslega með sýktri kornvöru. Hnetuglæðu verður oft vart í auknum mæli í desember og má sennilega rekja það til aukins innflutnings á valhnetum fyrir jólin. Flestir kannast við að hafa opnað valhnetuskel og orðið fyrir vonbrigðum með fá ekkert fyrir erfiðið annað en vef og mýgrút af svörtum smákornum. Það eru ummerki hnetuglæðu, spunaþræðir lirfanna og saur. Hnetuglæða er skaðvaldur og til óþurftar í híbýlum. Það er ágæt regla að frysta gæludýrafóður fyrir notkun til að tryggja að hnetuglæður berist ekki með því.

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

©Erling Ólafsson, 14. ágúst 2009


Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Pöddur í húsum > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica